Guðmundur Hafsteinsson yfirmaður vöruþróunar á Google Assistant hefur tekið að sér formennsku í stýrihópi um mótun nýsköpunarstefnu fyrir Ísland.
Þetta kemur fram í frétt atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins.
Guðmundur hefur starfað hjá Google frá árinu 2014 og leitt starf við margar af helstu tækninýjungum fyrirtækisins. Guðmundur er með MBA gráðu frá MIT og próf í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands.
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ráðherra nýsköpunarmála segir að á tímum mikilla breytinga sé öflug og kraftmikil nýsköpun í atvinnulífinu forsenda þess að Íslendingar tryggi góð lífskjör hér á landi til framtíðar. „Guðmundur hefur um árabil verið stjórnandi í leiðandi tæknifyrirtæki á heimsvísu og það er ómetanlegt að fá hans sýn og þekkingu nú þegar að við leggjum á ráðin hvernig árangursríkast sé að takast á við áskoranir framtíðarinnar.“
Frá ritstjórn: Guðmundur Hafsteinsson á 4,83 prósenta hlut í Kjarnanum.