Hátíðarfundurinn á Þingvöllum kostaði 87 milljónir

Heildarkostnaður við hátíðarfund Alþingis á Þingvöllum í júlí var tæpar 87 milljónir króna, eða 41 milljón umfram áætlun. Alls voru greiddar rúmar 9 milljónir fyrir hönnun og ráðgjöf í tengslum við hátíðarfundinn og rúmlega 2,5 milljónir í gæslu.

Pia Kjærsgaard Þingvellir
Auglýsing

Heild­ar­kostn­aður við hátíð­ar­fund Alþingis á Þing­völlum í júlí var tæpar 87 millj­ónir króna. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef Alþing­is. Alls voru greiddar rúmar 22 millj­ónir fyrir lýs­ingu á fund­inum og rúm 31 milljón fyrir efni og vinnu við upp­setn­ingu palla og gang­vega. Þá voru greiddar rúmar 9 millj­ónir fyrir hönnun og ráð­gjöf í tengslum við hátíð­ar­fund­inn og rúm­lega 2,5 millj­ónir í gæslu.

Kostn­aður var nokkuð umfram áætl­un, einkum vegna þess að tekin var ákvörðun um að hafa lýs­ingu og hljóð af „bestu gæð­um“ þar sem atburð­ur­inn var í beinni útsend­ingu. „Einnig var haft í huga að upp­taka af fund­inum myndi varð­veit­ast til fram­tíðar sem heim­ild um sögu þjóð­ar­inn­ar,“ segir í til­kynn­ing­unni. Þá segir einnig að vinna við að bæta og laga göngu­stíga á Þing­völlum fyrir við­burð­inn mun áfram nýt­ast gestum þjóð­garðs­ins.

Alls fór kostn­aður þannig 41 milljón fram úr áætl­un, þar sem upp­haf­leg rekstr­ar­á­ætlun gerði ráð fyrir kostn­aði upp á 45 millj­ón­ir.

Auglýsing

Kostn­að­ar­lið­irnir við hátíð­ar­fund­inn skipt­ast þannig:

Tafla: Alþingi.

Fund­ur­inn var hald­inn þann 18. júlí síð­ast­lið­inn af því til­efni að þá voru 100 ár liðin frá und­ir­­ritun samn­inga um sam­­bands­lögin svoköll­uðu, milli Íslands og Dan­­merk­­ur. Lögin tóku gildi 1. des­em­ber 1918 eftir þjóð­­ar­at­­kvæða­greiðslu um haustið og varð Ísland þá full­­valda ríki.

Fram­kvæmdin var afar umdeild, fyrst og síð­ast vegna þess að Pia Kjær­s­gaard, for­­seti danska þings­ins sem og stofn­andi og fyrr­ver­andi for­­maður Danska þjóð­­ar­­flokks­ins, til margra ára, flutti sér­­stakt ávarp og kveðju dönsku þjóð­­ar­inn­­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent