Forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur tjáir sig ekki meira um starfsmannamál ON

Bjarni Bjarnason mun ekki tjá sig frekar opinberlega um starfslok starfsfólks hjá Orku náttúrunnar. Nýr framkvæmdastjóri hefur verið ráðinn tímabundið.

Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur.
Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur.
Auglýsing

Bjarni Bjarna­son, for­stjóri Orku­veitu Reykja­víkur og for­maður stjórnar Orku nátt­úr­unn­ar, mun ekki ræða frekar opin­ber­lega um starfs­lok starfs­fólks hjá Orku nátt­úr­unnar að svo stöddu. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá honum í dag.

Fram kom í fréttum fyrir helgi að Bjarni Már Júl­í­us­son hefði verið rek­inn sem fram­kvæmda­stjóri Orku nátt­úr­unnar vegna óvið­eig­andi hegð­unar gagn­vart sam­starfs­fólki sínu.

Í yfir­lýs­ingu Bjarna kemur jafn­fram fram að honum hafi borið skylda til að skýra frá ástæðu starfs­loka fram­kvæmda­stjóra Orku nátt­úr­unn­ar. „Um opin­berar umræður um mál­efni ann­ars starfs­fólks en æðsta stjórn­anda gildir öðru máli. Óski starfs­maður að fara betur yfir skýr­ingar á ástæðum starfs­loka, stendur slíkt að sjálf­sögðu til boða,“ segir hann.

Auglýsing

Áslaug Thelma Ein­­ar­s­dótt­ir, sem sagt var upp störf­um hjá Orku nátt­úr­unn­ar fyr­ir viku, tjáir sig um málið á Face­book í dag. Hún gagn­rýnir for­stjóra Orku­veit­unnar harð­lega og seg­ist ætlar að leita réttar síns af fullum þunga. Í stöðu­upp­færslu sinni fer hún ítar­lega yfir brott­rekstur sinn hjá ON, sem hún segir til­hæfu­lausan, og seg­ist hún reið og slegin vegna afgreiðsl­unnar á mál­inu öllu.

Núna klukkan 9:00 í morgun er nákvæm­lega vika síðan ég var rekin án nokk­urra hald­bærra skýr­inga úr stöðu for­stöðu­manns...

Posted by Áslaug Thelma Ein­ars­dóttir on Monday, Sept­em­ber 17, 2018


Berg­lind Rán tekur tíma­bundið við stöðu fram­kvæmda­stjóra

Berglind Rán Ólafsdóttir Mynd: ONÁkveðið hefur verið að for­stöðu­maður fyr­ir­tækja­mark­aða ON, Berg­lind Rán Ólafs­dótt­ir, taki tíma­bundið við starfi fram­kvæmda­stjóra ON en ekki for­stöðu­maður tækni­þró­un­ar, eins og áður var til­kynnt. 

Berg­lind er sam­einda­líf­fræð­ingur með MBA próf frá IESE í Barcelona. Hún kom til starfa hjá Orku nátt­úr­unnar fyrir ári og hafði þá meira en ára­tug­ar­reynslu af við­skipta­þróun meðal ann­ars hjá Lands­virkj­un, Medis og Íslenskri erfða­grein­ingu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent