Ætlar að selja tæplega helminginn í WOW air

Skúli Mogensen segir WOW air ætla að safna um 200 til 300 milljónum dollara, eða 22 til 33 milljörðum íslenskra króna, í nýtt hlutafé í hlutafjárútboði sem fyrirtækið ætlar að ráðast í á næstu tveimur árum.

Skúli Mogensen Mynd: WOW air
Auglýsing

Skúli Mog­en­sen segir WOW air ætla að safna um 200 til 300 millj­ónum doll­ara, eða 22 til 33 millj­örðum íslenskra króna, í nýtt hlutafé í hluta­fjár­út­boði sem fyr­ir­tækið ætlar að ráð­ast í á næstu tveimur árum. Þetta segir Skúli, for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, í sam­tali við Fin­ancial Times. Skúli ætlar að selja tæp­lega helm­ing fyr­ir­tæk­is­ins, án þess þó að nefna heild­ar­verð­mæti flug­fé­lags­ins.

F­in­ancial Times greinir frá því að síð­ustu tvö rekstr­arár hafi reynst WOW air erf­ið­lega, fyri­tækið hafi tapað 26,5 millj­ónum doll­ara, eða þremur millj­örðum íslenskra króna, fyrir skatt í fyrra og gert ráð fyrir að tap þessa árs muni nema sex millj­ónum doll­ara eða um 600 millj­ónum króna. Von­ast sé til þess að á næsta ári muni fyr­ir­tækið hins vegar skila hagn­aði.

Skúli segir að WOW air hafi ekki tek­ist að tak­marka kostnað félags­ins, hækkun elds­neyt­is­verðs hafi unnið gegn þeim og WOW sé ekki með varnir gegn hækk­unum sem hann vill end­ur­skoða. Í frétt Fin­ancial Times segir að olíu­verð hafi hækkað umtals­vert á liðnum mán­uð­um, tunnan hafi verið á 92 doll­ara í lok ágúst og hækkað um 25 pró­sent á einum árs­fjórð­ungi. Önnur flug­fé­lög víðs vegar í heim­inum hafi hins vegar skilað met­hagn­aði árið 2017, þvert á stöð­una hjá WOW air.

Auglýsing

WOW air sendi fyrir helgi frá sér til­kynn­ingu þar sem sagði að skulda­bréfa­út­boði félags­ins muni ljúka á morg­un. Gefin verða út skulda­bréf fyrir minst 50 millj­ónir evra, eða rúma 6 millj­arða króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent