Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar, Katrín Sif Sigurgeirsdóttir formaður kjaranefndar Ljósmæðrafélags Íslands, Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness og Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR mótmæla harðlega þeim aðgerðum sem stjórn Icelandair hyggst ráðast í gegn flugfreyjum og flugþjónum sem starfa hjá fyrirtækinu. Þetta kemur fram yfirlýsingu sem hópurinn sendi frá sér í dag.
Icelandair setti flugfreyjum og flugþjónum þá afarkosti fyrir helgi að velja á milli þess að fara í fulla vinnu frá og með 1. janúar næstkomandi eða missa vinnuna.
Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins og frambjóðandi til forseta ASÍ, tekur í sama streng í stöðuuppfærslu á Facebook og segir það ömurlegt að fylgjast með framgöngu Icelandair gagnvart flugfreyjum og flugþjónum þar sem þvinga eigi alla í fullt starf í hagræðingarskyni.
„Í ljósi þess að stjórn félagsins hefur á síðastliðnum tveimur árum greitt hluthöfum rúman 1,3 milljarð í arð vekur það furðu að ráðast eigi að atvinnuöryggi þeirra sem gert hafa rekstur fyrirtækisins mögulegan; þeim sem unnið hafa vinnuna, með því að banna hlutastörf,“ segir í yfirlýsingunni.
Þau spyrja hvernig væri að stjórnendur félagsins byrjuðu á því að axla ábyrgð á stöðu þeirri sem komin er upp hjá Icelandair með því að afsala sér ofurlaunum og kaupaukagreiðslum, upphæðum sem eru margföld laun vinnuaflsins á íslenskum vinnumarkaði.
„Á meðan það er ekki gert er allt tal um háan launakostnað Icelandair algjörlega ómarktækt. Eins og svo oft áður í íslensku samfélagi beinast aðgerðirnar að stórri kvennastétt sem ætlast er til að beri byrðar „hagræðingar“ og sparnaðar. Enn á ný sjáum við hversu kerfisbundin kvenfyrirlitningin er í þjóðfélaginu og hvernig hagsmunir efnahagslegra forréttindahópa vega ávallt þyngra en virðing fyrir kvennastörfum. Kapítalísk græðgisvæðing býr til efnahagslegan óstöðugleika, ekki kröfur vinnuaflsins um sanngirni, það hefur sagan kennt okkur og því fordæmum við að ráðist skuli með þessum hætti að hagsmunum starfsfólks Icelandair. Við lýsum yfir samstöðu með flugfreyjum og flugþjónum í baráttu þeirra fyrir virðingu og réttlæti. Við hvetjum aðra til að gera slíkt hið sama,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu þeirra.
YFIRLÝSING VEGNA AÐGERÐA ICELANDAIR Við undirrituð mótmælum harðlega þeim aðgerðum sem stjórn Icelandair hyggst ráðast...
Posted by Sólveig Anna Jónsdóttir on Monday, September 24, 2018
Drífa segir ömurlegt að fylgjast með framgöngu Icelandair gagnvart flugfreyjum og flugþjónum þar sem þvinga eigi alla í fullt starf í hagræðingarskyni.
„Þetta er ótrúleg skammsýni og aðför að stétt sem er að stærstum hluta til skipuð konum. Svo sé ég ekki betur en að þetta stangist á við samkomulag um hlutastörf í kjarasamningum. Að vinna á óreglulegum tímum er gríðarlegt álag og við það bætist að vera fjarri heimili langdvölum. Það skal því engan undra að flugfreyjur og flugþjónar kjósi að vinna hlutastörf til að hafa möguleika á að samræma vinnu og heimili. Fólk í vaktavinnu nýtur skertra lífsgæða og augu okkar hafa opnast fyrir því síðustu ár að það getur verið beinlínis heilsuspillandi að vinna óreglulega vinnutíma. Það er því nær að sækja fram fyrir þær stéttir sem vinna vaktavinnu og hafa verið háværar kröfur um að 80% vaktavinna sé ígildi 100% starfs. Þessar kröfur eru ekki úr lausu lofti gripnar. Ákvörðun Icelandair er því aðför að kvennastétt og sýnir starfi flugfreyja og flugþjóna ótrúlega lítilsvirðingu og skilningsleysi. Ég styð stéttina alla leið!“ segir hún.
Það er ömurlegt að fylgjast með framgöngu Icelandair gagnvart flugfreyjum og flugþjónum þar sem þvinga á alla í fullt...
Posted by Drífa Snædal on Monday, September 24, 2018