Mótmæla harðlega aðgerðum Icelandair gegn flugfreyjum og flugþjónum

Forystumenn stærstu stéttarfélaga landsins mótmæla harðlega þeim aðgerðum sem stjórn Icelandair hyggst ráðast í gegn flugfreyjum og flugþjónum sem starfa hjá fyrirtækinu.

1. maí kröfuganga 2018.
1. maí kröfuganga 2018.
Auglýsing

Sól­veig Anna Jóns­dóttir for­maður Efl­ing­ar, Katrín Sif Sig­ur­geirs­dóttir for­maður kjara­nefndar Ljós­mæðra­fé­lags Íslands, Vil­hjálmur Birg­is­son for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akra­ness og Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR mót­mæla harð­lega þeim aðgerðum sem stjórn Icelandair hyggst ráð­ast í gegn flug­freyjum og flug­þjónum sem starfa hjá fyr­ir­tæk­inu. Þetta kemur fram yfir­lýs­ingu sem hóp­ur­inn sendi frá sér í dag.

Icelandair setti flug­­freyjum og flug­­­þjónum þá afar­­kosti fyrir helgi að velja á milli þess að fara í fulla vinnu frá og með 1. jan­úar næst­kom­andi eða missa vinn­una.

Drífa Snæ­dal, fram­­kvæmda­­stjóri Starfs­­greina­­sam­­bands­ins og fram­bjóð­andi til for­seta ASÍ, tekur í sama streng í stöðu­upp­færslu á Face­book og segir það ömur­legt að fylgj­ast með fram­göngu Icelandair gagn­vart flug­freyjum og flug­þjónum þar sem þvinga eigi alla í fullt starf í hag­ræð­ing­ar­skyni.

Auglýsing

„Í ljósi þess að stjórn félags­ins hefur á síð­ast­liðnum tveimur árum greitt hlut­höfum rúman 1,3 millj­arð í arð vekur það furðu að ráð­ast eigi að atvinnu­ör­yggi þeirra sem gert hafa rekstur fyr­ir­tæk­is­ins mögu­legan; þeim sem unnið hafa vinn­una, með því að banna hluta­störf,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Þau spyrja hvernig væri að stjórn­endur félags­ins byrj­uðu á því að axla ábyrgð á stöðu þeirri sem komin er upp hjá Icelandair með því að afsala sér ofur­launum og kaupauka­greiðsl­um, upp­hæðum sem eru marg­föld laun vinnu­aflsins á íslenskum vinnu­mark­aði.

„Á meðan það er ekki gert er allt tal um háan launa­kostnað Icelandair algjör­lega ómark­tækt­. Eins og svo oft áður í íslensku sam­fé­lagi bein­ast aðgerð­irnar að stórri kvenna­stétt sem ætl­ast er til að beri byrðar „hag­ræð­ing­ar“ og sparn­að­ar. Enn á ný sjáum við hversu kerf­is­bundin kven­fyr­ir­litn­ingin er í þjóð­fé­lag­inu og hvernig hags­munir efna­hags­legra for­rétt­inda­hópa vega ávallt þyngra en virð­ing fyrir kvenna­störf­um. Kap­ít­al­ísk græðg­i­svæð­ing býr til efna­hags­legan óstöð­ug­leika, ekki kröfur vinnu­aflsins um sann­girni, það hefur sagan kennt okkur og því for­dæmum við að ráð­ist skuli með þessum hætti að hags­munum starfs­fólks Icelanda­ir. Við lýsum yfir sam­stöðu með flug­freyjum og flug­þjónum í bar­áttu þeirra fyrir virð­ingu og rétt­læti. Við hvetjum aðra til að gera slíkt hið sama,“ segir í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu þeirra.

YFIR­LÝS­ING VEGNA AÐGERÐA ICELANDA­IR Við und­ir­rituð mót­mælum harð­lega þeim aðgerðum sem stjórn Icelandair hyggst ráð­ast...

Posted by Sól­veig Anna Jóns­dóttir on Monday, Sept­em­ber 24, 2018


Drífa segir ömur­legt að fylgj­ast með fram­göngu Icelandair gagn­vart flug­freyjum og flug­þjónum þar sem þvinga eigi alla í fullt starf í hag­ræð­ing­ar­skyni.

„Þetta er ótrú­leg skamm­sýni og aðför að stétt sem er að stærstum hluta til skipuð kon­um. Svo sé ég ekki betur en að þetta stang­ist á við sam­komu­lag um hluta­störf í kjara­samn­ing­um. Að vinna á óreglu­legum tímum er gríð­ar­legt álag og við það bæt­ist að vera fjarri heim­ili lang­dvöl­um. Það skal því engan undra að flug­freyjur og flug­þjónar kjósi að vinna hluta­störf til að hafa mögu­leika á að sam­ræma vinnu og heim­ili. Fólk í vakta­vinnu nýtur skertra lífs­gæða og augu okkar hafa opn­ast fyrir því síð­ustu ár að það getur verið bein­línis heilsu­spill­andi að vinna óreglu­lega vinnu­tíma. Það er því nær að sækja fram fyrir þær stéttir sem vinna vakta­vinnu og hafa verið háværar kröfur um að 80% vakta­vinna sé ígildi 100% starfs. Þessar kröfur eru ekki úr lausu lofti gripn­ar. Ákvörðun Icelandair er því aðför að kvenna­stétt og sýnir starfi flug­freyja og flug­þjóna ótrú­lega lít­ils­virð­ingu og skiln­ings­leysi. Ég styð stétt­ina alla leið!“ segir hún.

Það er ömur­legt að fylgj­ast með fram­göngu Icelandair gagn­vart flug­freyjum og flug­þjónum þar sem þvinga á alla í full­t...

Posted by Drífa Snæ­dal on Monday, Sept­em­ber 24, 2018


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent