Heiðveig María Einarsdóttir, sjómaður og viðskiptalögfræðingur, hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns Sjómannafélags Íslands. Hún greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni í dag.
Hún segir að eftir sjómannaverkfallið 2017 hafi ítrekað verið skorað á hana að bjóða sig fram til forystu og hugleiddi hún það af mikilli alvöru. Á sama tíma hafi hún hvatt Sjómannafélag Íslands og Sjómannasamband Íslands til að láta verkin tala en upplifað þögn.
Heiðveig hefur gagnrýnt harðlega nýtt frumvarp um breytingar á veiðigjöldum sem kynnt var í síðustu viku og af þeim sökum tók hún saman athugasemdir og umsögn um frumvarpið og komið þeim á framfæri við Atvinnuveganefnd Alþingis sem fer með málið.
„Eftir að ég skilaði sjálf inn umsögn um Veiðigjaldafrumvarp Ríkisstjórnarinnar í gær hefur pósthólfið mitt fyllst af hrósi, hvatningu, áhuga og áskorunum til forystu og hef ég því tekið þá stóru ákvörðun að bjóða mig fram til formanns fyrir Sjómannafélag Íslands. Ég vil í framhaldi af þessari ákvörðun örva umræðu meðal sjómanna og kalla á sama tíma eftir áhugasömu fólki til að vinna að og móta stefnu framboðsins,“ segir hún í stöðuuppfærslu sinni á Facebook.
Eftir sjómannaverkfallið 2017 var ítrekað skorað á mig að bjóða mig fram til forystu og hugleiddi ég það af mikilli...
Posted by Heiðveig María Einarsdóttir on Tuesday, October 2, 2018