Laxeldisfyrirtækin fá 10 mánaða frest

Frumvarp sjávarútvegsráðherra um breytingar á lögum um fiskeldi verður lagt fram í dag. Frumvarpið gerir ráðherra kleift að veita fyrirtækjum bráðabirgðaleyfi.

lax_9952982274_o.jpg
Auglýsing

Í dag mun Krist­ján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, leggja fram frum­varp til breyt­ingar á lögum um fisk­eldi til að tryggja að fyr­ir­tæk­in, Fjarða­lax og Artic Fish, geti haldið áfram starf­semi þrátt fyrir úrskurði og aft­ur­köllun starfs­leyfa fyr­ir­tækj­anna. Í frum­varp­inu er ráð­herra gert kleift , að und­an­geng­inni umsögn Mat­væla­stofn­un­ar,  að veita fyr­ir­tækjum í lax­eldi bráða­birgða­leyfi til að allt að 10 mán­aða. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

„Frum­varp­inu er ætlað að lag­færa með almennum hætti ann­marka á lögum um fisk­eldi til fram­tíð­ar. Sá ann­marki birt­ist í því að sam­kvæmt gild­andi lögum er eina úrræði Mat­væla­stofn­unar í þeim til­vikum sem rekstr­ar­leyfi fisk­eld­is­stöðvar er fellt úr gildi að stöðva starf­semi henn­ar. Þannig hafa stjórn­völd engin úrræði til að koma í veg fyrir mögu­lega óaft­ur­kræfa og óþarfa sóun verð­mæta né heldur gæta með­al­hófs,“ segir í til­kynn­ingu frá Krist­jáni, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra.  

Drög að frum­varp­inu voru sam­þykkt á auka­fundi rík­is­stjórn­ar­innar í hádeg­inu í gær og kynnt hinum stjórn­mála­flokk­unum síð­degis í gær. Fyr­ir­tækj­unum Arctic Fis­h og Fjarða­laxi er því gef­inn frestur til að fara yfir umhverf­is­mat fyr­ir­tækj­anna til að tryggja að umsókn þeirra um aukið lax­eldi á sunn­an­verðum Vest­fjörðum verði sam­kvæmt lögum og regl­um. Aðspurður segir Krist­ján Þór frum­varpið ekki fara á svig við úrskurð nefnd­ar­innar um að fella starfs­leyfi fisk­eld­is­fyr­ir­tækj­anna tveggja úr gildi. Hann segir þá ákvörðun vera sjálf­stæða og frum­varpið ekki snerta hennar úrskurð. Frum­varpið flýti ein­fald­lega fyrir ferli máls­ins en bið eftir úrskurði dóm­stóla væri bæði kostn­að­ar­söm og tíma­frek.

Sam­kvæmt heim­ildum Frétta­blaðs­ins voru full­trúar Arctic Fish kall­aðir á fund við­skipta­banka síns þegar rekstr­ar­leyfi þeirra hafði verið aft­ur­kallað og gerð grein fyrir því að aft­ur­köllun á rekstr­ar­leyfi gæti þýtt riftun á láns­samn­ingum við félag­ið. Því má segja að stjórn­völd björg­uðu lána­línu Artic Fish á síð­ustu stundu.

Auglýsing

Ekki gildir sátt um frum­varpið

Fundur var hald­inn í gær með mat­væla­stofn­un, Umhverf­is­stofn­un, Skipu­lags­stofnun og lax­eld­is­fyr­ir­tækj­unum tveim­ur. Þar kom fram að fyr­ir­tækin tvö hafa ekki sótt um und­an­þágu frá starfs­leyf­inu til umhverf­is­ráð­herra. Sig­rún Ágústs­dótt­ir, sviðs­stjóri hjá Umhverf­is­stofn­un, segir að á fund­inum hafi verið rædd til­laga um hvernig væri hægt að bæta úr þeim ann­marka sem fjallað er um í úrskurðum úrskurð­ar­nefndar umhverf­is- og auð­linda­mála. „Ný leyfi fyr­ir­tækj­anna tveggja eru fallin úr gildi en eldri leyfi þeirra fyrir minna umfangi eru enn í gildi sam­kvæmt okkar skiln­ingi. Það sé því enn hægt að nýta þau leyfi að okkar mat­i,“ segir Sig­rún. Frá þessu er greint í umfjöllun Frétta­blaðs­ins.

Ótttar Ynga­va­son, lög­maður nátt­úru­vernd­ar­sam­taka og veiði­rétt­ar­hafa, segir stjórn­völd ekki hafa heim­ild í lögum fyrir fyr­ir­hug­uðu frum­varpi í við­tali við Vísi. Jafn­framt segir hann engan grund­völl vera fyrir því að þessi fyr­ir­tæki fá að fara fram hjá eðli­legu ferli sem væri að leggja mál fyrir dóm­stóla. „Með öðrum aðgerðum er verið að reyna að fara í kringum venju­leg lög og reglur í land­inu. Það er í raun­inni bara óheim­ilt og ólög­leg­t,“ segir Óttar og segir engan vafa vera á því að stjórn­völd séu að brjóta lög með frum­varp­inu.  Þá segir Óttar með­al­hófs­regl­una ekki eiga við í þessu til­viki og segir slíkar full­yrð­ingar vera til þess fallnar að afvega­leiða umræð­una.

Rósa Björk Brynj­ólfs­dótt­ir, þing­maður VG, hefur óskað eftir því að fundað sé með umhverf­is­vernd­ar­sinnum og lax­veiði­rétt­ar­höfum til að heyra þeirra sjón­ar­mið í umhverf­is- og sam­göngu­nefnd­inni. En aðspurð segir hún enn engar und­ir­tektir við þeirri beiðni, hvorki frá stjórn­ar­liðum né stjórn­ar­að­stöðu.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent