Landssamband veiðifélaga lýsir yfir vonbrigðum með þá niðurstöðu Alþingis að breyta fiskeldislögum þannig að opnað sé á möguleika ráðherra til að gefa út rekstrarleyfi til bráðarbirgða til allt að 20 mánaða. Þetta kemur fram í fréttatilkynning frá sambandinu í dag.
Lýsir Landssambandið einnig furðu sinni á því að hafa á engu stigi fengið að leggja fram umsögn um umrædda lagasetningu. „Af umræðum undanfarna daga verður að teljast líklegt að þessi heimild verði notuð til að draga úr áhrifum úrskurða sem eru umhverfinu í hag,“ segir í tilkynningunni.
Frumvarp Kristjáns Þórs Júlíussonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra var samþykkt á Alþingi í gærkvöldi en samkvæmt því mun verða mögulegt að veita rekstrarleyfi til bráðabirgða fyrir fiskeldi. Ástæðan fyrir frumvarpinu er sú að Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi úr gildi rekstrarleyfi og starfsleyfi Fjarðarlax og Arctic Sea til laxeldis í sjókvíum í Patreksfirði og Tálknafirði og vísaði einnig frá beiðni fyrirtækja um frestun réttaráhrifa.
Landssamband veiðifélaga spyr sig hvort málum sé virkilega þannig komið að sé nægjanlegum þrýstingi beitt víki reglur um umhverfisvernd. „Landssamband veiðifélaga minnir á að ekki eru liðnir nema nokkrir mánuðir síðan kynntar voru hugmyndir Hafrannsóknarstofnunar um 3.000 tonna „tilraunaeldi“ í Ísafjarðardjúpi. Virðist það vera gert gagngert til að komast framhjá áhættumati um erfðamengun sem hafði í raun lokað fyrir eldi frjórra norskra laxa í Djúpinu. Stuttu áður hafði álit Skipulagsstofnunar, sem lagðist gegn eldi frjórra laxa, verið dregið til baka eftir mikinn pólitískan þrýsting.
Eftir „velheppnaða“ herferð Landssambands fiskeldisstöðva gegn úrskurði Úrskurðarnefndar auðlinda- og skipulagsmála má búast við að eldi frjórra laxa í Djúpinu verði næsta markmið, ásamt frekari tilslökunum á lögum um fiskeldi. Landssamband veiðifélaga hvetur unnendur íslenskrar náttúru til þess að vera sérstaklega á verði gagnvart frekari tilslökunum á reglum er varða umhverfisvernd. Einnig þeirri tilhneigingu, að sé nægu pólitískum þrýstingi beitt víki umhverfisverndin alltaf,“ segir í tilkynningunni.