Landssamband veiðifélaga: Sé nægum þrýstingi beitt víkur umhverfisvernd

Landssamband veiðifélaga lýsir furðu sinni á því að hafa á engu stigi fengið að leggja fram umsögn um frumvarp sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um breytingu á fiskeldislögum sem samþykkt var á Alþingi í gærkvöldi.

laxeldi
Auglýsing

Lands­sam­band veiði­fé­laga lýsir yfir von­brigðum með þá nið­ur­stöðu Alþingis að breyta fisk­eld­is­lögum þannig að opnað sé á mögu­leika ráð­herra til að gefa út rekstr­ar­leyfi til bráð­ar­birgða til allt að 20 mán­aða. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ing frá sam­band­inu í dag. 

­Lýsir Lands­sam­bandið einnig furðu sinni á því að hafa á engu stigi fengið að leggja fram umsögn um umrædda laga­setn­ingu. „Af umræðum und­an­farna daga verður að telj­ast lík­legt að þessi heim­ild verði notuð til að draga úr áhrifum úrskurða sem eru umhverf­inu í hag,“ segir í til­kynn­ing­unn­i. 

Frum­varp Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar sjá­v­­­ar­út­­­vegs- og land­­bún­­að­­ar­ráð­herra var sam­þykkt á Alþingi í gær­kvöldi en sam­­­kvæmt því mun verða mög­u­­­legt að veita rekstr­­­ar­­­leyfi til bráða­birgða fyrir fisk­eld­i. Á­stæðan fyrir frum­varp­inu er sú að Úrskurð­­­ar­­­nefnd umhverf­is- og auð­linda­­­mála felldi úr gildi rekstr­­­ar­­­leyfi og starfs­­­leyfi Fjarð­­­ar­­­lax og Arctic Sea til lax­eldis í sjó­kvíum í Pat­­­reks­­­firði og Tálkna­­­firði og vís­aði einnig frá beiðni fyr­ir­tækja um frestun rétt­­­ar­á­hrifa.

Auglýsing

Lands­sam­band veiði­fé­laga spyr sig hvort málum sé virki­lega þannig komið að sé nægj­an­legum þrýst­ingi beitt víki reglur um umhverf­is­vernd. „Lands­sam­band veiði­fé­laga minnir á að ekki eru liðnir nema nokkrir mán­uðir síðan kynntar voru hug­myndir Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar um 3.000 tonna „til­rauna­eldi“ í Ísa­fjarð­ar­djúpi. Virð­ist það vera gert gagn­gert til að kom­ast fram­hjá áhættu­mati um erfða­mengun sem hafði í raun lokað fyrir eldi frjórra norskra laxa í Djúp­inu. Stuttu áður hafði álit Skipu­lags­stofn­un­ar, sem lagð­ist gegn eldi frjórra laxa, verið dregið til baka eftir mik­inn póli­tískan þrýst­ing.

Eftir „vel­heppn­aða“ her­ferð Lands­sam­bands fisk­eld­is­stöðva gegn úrskurði Úrskurð­ar­nefndar auð­linda- og skipu­lags­mála má búast við að eldi frjórra laxa í Djúp­inu verði næsta mark­mið, ásamt frek­ari til­slök­unum á lögum um fisk­eld­i. Lands­sam­band veiði­fé­laga hvetur unn­endur íslenskrar nátt­úru til þess að vera sér­stak­lega á verði gagn­vart frek­ari til­slök­unum á reglum er varða umhverf­is­vernd. Einnig þeirri til­hneig­ingu, að sé nægu póli­tískum þrýst­ingi beitt víki umhverf­is­verndin alltaf,“ segir í til­kynn­ing­unn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent