Samkeppniseftirlitið hefur nú til skoðunar kaup Árvakurs hf. og 365 miðla hf. á Póstmiðstöðinni ehf., en með samrunanum hyggjast samrunaaðilar sameina dreifikerfi sín fyrir dagblöð, tímarit og fjölpóst undir fyrirtækinu Póstmiðstöðinni sem þeir hyggjast reka sem dótturfélag.
Samkeppniseftirlitið hefur nú með sérstakri tilkynningu óskaði eftir sjónarmiðum allra þeirra sem telja sig eiga hagsmuna að gæta vegna þessa fyrirhugaða samstarfs og samreksturs risanna á fjölmiðlamarkaði.
Árvakur er útgáfufélag Morgunblaðsins og Torg ehf. dótturfélag 365 miðla er útgáfufélag Fréttablaðsins. Um er að ræða stærstu dagblöð landsins. Póstmiðstöðin er félag sem starfar á sviði dreifingar, m.a. dagblaða og fjölpósts. Póstmiðstöðin er dreifingaraðili Fréttablaðsins og annarra miðla. Landsprent ehf. er dótturfélag Árvakurs og hefur m.a. sinnt dreifingu Morgunblaðsins og annarra miðla.
„Samrunaaðilar hafa lýst sig reiðubúna til þess að tryggja aðgang þriðju aðila að dreifikerfi Póstmiðstöðvarinnar. Hefur Samkeppniseftirlitið kynnt samrunaaðilum frummat sitt vegna samrunans og gefið þeim færi á því að leggja til skilyrði sem myndu leysa þau samkeppnislegu vandkvæði sem annars leiða af samrunanum. Hjálagðar tillögur samrunaaðila að skilyrðum sem unnt væri að setja samrunanum bárust þann 12. október 2018,“ segir í tilkynningu samkeppnisyfirvalda.
Áréttað er í tilkynningu Samkeppniseftirlitsins að það hefur ekki tekið afstöðu til framlagðra tillagna samrunaaðila.