Kristinn Haukur Guðnason hefur verið ráðinn fréttastjóri hjá DV. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ritstjóra DV, Kristjóni Kormáki Guðjónssyni.
Kristinn hóf störf sem blaðamaður hjá DV í júní á síðasta en áður hafði hann skrifað greinar fyrir Kjarnann frá árinu 2013. Kristinn mun hafa umsjón með helgarblaðinu ásamt Birni Þorfinnssyni. Kristinn er fæddur í Uppsölum í Svíþjóð árið 1980. Hann er með MA-gráðu í sagnfræði og hefur numið við Háskóla Íslands og Edinborgarháskóla.
Kristinn segist vera þakklátur fyrir það traust sem honum sé sýnt. „Hér er samrýmdur, hugmyndaríkur og öflugur hópur starfsfólks sem hefur gert það að verkum að miðillinn er á mikilli uppleið. Það er spennandi að fá að taka þátt í að móta DV á komandi misserum enda erum við sífellt að auka fjölbreytni efnisins fyrir lesendur. Það er ákaflega gefandi að finna fyrir þessum mikla meðbyr og við ætlum að halda sókninni áfram,“ segir hann.