Stjórnendur facebook-síðunnar Karlar gera merkilega hluti hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að síðan sé lifandi vettvangur fyrir konur til að fá útrás í heimi þar sem karllæg gildi eru metin ofar kvenlægum. Þar sé nú á tíunda þúsund kvenna sem í langflestum tilfellum gera góðlátlegt grín að fréttamati fjölmiðla þar sem hver karlahópurinn á fætur öðrum er mærður fyrir skóflustungur og boltaspark á meðan framlag kvenna til samfélagsins er sjaldan til umfjöllunar.
Undir yfirlýsinguna skrifa Sóley Tómasdóttir, Hildur Lilliendahl Viggósdóttir og Sæunn Ingibjörg Marinósdóttir.
Forsaga málsins er sú að Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður lýsti í aðsendri grein í Morgunblaðinu í gær neikvæðum ummælum sem sögð eru um hann í rúmlega níu þúsund manna lokuðum hópi á Facebook. Þar væri hann nafngreindur og meðal annars kallaður viðbjóður og kvikindi. Þá væri það sagt tilefni til að skála í kampavíni ef hann deyr. Þeir sem skrifa í hópnum koma fram undir nafni.
Í yfirlýsingunni segir að í stórum og virkum hópi séu innlegg og ummæli misfyndin og misviðeigandi eins og gengur og ritstjórnir fjölmiðla með athugasemdakerfi ættu að þekkja mætavel. „Í umfjöllun um hópinn undanfarna daga hafa verið tínd til ummæli sem sum hver hafa verið óviðeigandi. Þó skal tekið fram að flest þeirra eru látin falla vegna viðtals þar sem þekktur verjandi kynferðisafbrotamanna ætlaðist til þess að þolendur fyrirgæfu gerendum sínum.
Í viðtalinu kom Jón Steinar Róbert Downey til varnar, en hann var dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn fjórum stúlkum fyrir tíu árum. Kannski ætti lögmaðurinn að prófa sitt eigið meðal og fyrirgefa konunum sem tala um hann á internetinu frekar en að hringja í þær og skrifa um þær greinar í blöðin,“ segir í yfirlýsingunni.
Ætla að gæta að umræðan sé innan siðferðismarka
Þær telja að síðan Karlar gera merkilega hluti sé mikilvægur og valdeflandi vettvangur en tilvist hans verði hvorki útskýrð eða rökrædd við mann sem skrifar feðraveldi innan gæsalappa og skilur ekki hvað „öruggt svæði“ er.
„Við munum hér eftir sem hingað til leggja okkur fram um að stýra þessum hóp og gæta þess að þar sé umræða innan siðferðismarka þó vissulega geti eitthvað farið framhjá okkur eins og einstaka ummæli sem birt hafa verið í fjölmiðlum að undanförnu sýna,“ segir í yfirlýsingunni.
Yfirlýsing frá stjórnendum Karlar gera merkilega hluti Karlar gera merkilega hluti er lifandi vettvangur fyrir konur...
Posted by Hildur Lilliendahl Viggósdóttir on Saturday, October 20, 2018