Hanna Björg hugsi – „Stærsta kvennastétt á Íslandi hafnar konum, aftur og aftur og aftur“

Framhaldsskólakennari í Borgarholtsskóla sem sóttist eftir því að verða næsti formaður KÍ segir að skólakerfið sé annað hvort hluti af vandanum eða lausninni. Það verði aldrei jafnrétti á Íslandi ef skólakerfið er ekki virkur aðili í þeirri vegferð.

Hanna Björg Vilhjálmsdóttir
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir
Auglýsing

„Þá er þessum kafla lok­ið. Ég tap­aði. Auð­vitað er ég aum, súr og spæld en ég verð fljót að jafna mig. En ég er líka hugsi.“

Þetta skrifar Hanna Björg Vil­hjálms­dótt­ir, fram­halds­skóla­kenn­ari og fram­bjóð­andi til emb­ættis for­manns Kenn­ara­sam­bands Íslands (KÍ) í stöðu­upp­færslu á Face­book-­síðu sinni í dag.

Nið­ur­stöður lágu fyrir í gær og var Magnús Þór Jóns­­son, skóla­stjóri í Selja­skóla, kjör­inn nýr for­­maður KÍ með tæp 42 pró­sent atkvæða. Hanna Björg hlaut rúm 16 pró­­sent atkvæða í raf­rænni atkvæða­greiðslu.

Auglýsing

Hanna Björg segir í stöðu­upp­færsl­unni að stærsta kvenna­stétt á Íslandi hafni konum – aftur og aftur og aft­ur. „Einkum og sér í lagi femíniskri konu. Þar sem ég er helst þekkt fyrir jafn­rétt­is­starf mitt í skóla­kerf­inu, þá hef ég áhyggj­ur. Hver er staða jafn­rétt­is­mála í skólum lands­ins? Ég hef sagt og segi enn, skóla­kerfið er annað hvort hluti af vand­anum eða lausn­inni. Það verður aldrei jafn­rétti á Íslandi ef skóla­kerfið er ekki virkur aðili í þeirri veg­ferð. Hverjar eru horf­urn­ar? Sú stað­reynd að ég er umdeild vegna jafn­rétt­is­vinnu minnar – segir okkur að jafn­rétt­is­hug­sjónin er umdeild og hvernig komumst við þá áfram?“ spyr hún.

„Eigum enn langt í jafn­rétt­is­landið og paradís­ina“

Við kenn­ara vill Hanna Björg segja: „Ég vona að nið­ur­staða kosn­ing­anna sé ekki vís­bend­ing um við­horf ykkar til inn­leið­ingar jafn­rétt­is­hug­sjón­ar­innar í skóla­kerf­ið. Við ykkur hin vil ég segja – við eigum enn langt í jafn­rétt­is­landið og paradís­ina. Ég er stolt af kosn­inga­bar­átt­unni minni sem var heið­ar­leg, ein­læg og mál­efna­leg.“

Þá þakkar Hanna Björg þeim 1.083 kenn­urum sem kusu hana. „Auð­mjúkar þakkir fyrir öll fal­legu orð­in, ein­læga stuðn­ing­inn og allt peppið frá fjöl­skyld­unni minni, vinum og þeim sem ég þekki ekki neitt – ég bý að þessu alla ævi.

Ég óska kenn­ara­stétt­inni þess að vera sam­einuð og sterk, og ég óska verð­andi for­manni far­sældar í starf­i,“ skrifar hún að lok­um.

Þá er þessum kafla lok­ið. Ég tap­aði. Auð­vitað er ég aum, súr og spæld en ég verð fljót að jafna mig. En ég er lík­a...

Posted by Hanna Björg Vil­hjálms­dóttir on Wed­nes­day, Novem­ber 10, 2021

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent