Dagur sér ekki fyrir sér afsögn borgarstjóra vegna braggamálsins

Borgarstjórinn í Reykjavík segir Morgunblaðsarm Sjálfstæðisflokksins bera ábyrgð á því að málflutningur um afsögn hans sé hávær. Hann er gestur sjónvarpsþáttarins 21 á Hringbraut í kvöld.

Dagur B. Eggertsson 31. okt 2018
Auglýsing
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­vík­ur­borg­ar, sér ekki fyrir sér að hann muni segja af sér emb­ætt­inu vegna bragga­máls­ins svo­kall­aða. Á end­anum sé það þó ekki bara hans að svara þeirri spurn­ingu. Há­vær krafa hefur verið um það úr ranni hluta þeirra flokka sem eru í minni­hluta í borg­ar­stjórn að Dagur axli ábyrgð vegna máls­ins og segi af sér. Hann segir þann mál­flutn­ing fyrst og síð­ast koma úr einni átt. „Þetta er mál­flutn­ingur sem Morg­un­blaðs­armur Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur haldið á lofti, ekki bara í þessu máli heldur hefur þetta verið nefnt óvenju­oft í tengslum við ýmis­leg­t.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í ítar­legu við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarn­ans, við Dag í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut sem sýndur verður í kvöld. Hægt er að sjá stiklu úr þætti kvölds­ins hér að neð­an.

Bragg­inn í Naut­hóls­vík hefur valdið fjaðrafoki síð­ast­liðnar vikur þar sem kostn­aður við fram­kvæmdir end­ur­gerðar hans fóru langt fram úr áætl­un. Kostn­aður við fram­kvæmd­irnar nemur nú rúm­lega 400 millj­ónum króna en upp­haf­lega var gert ráð fyrir að hann yrði 158 millj­ón­ir. 

Hæsti reikn­ing­­ur­inn við fram­­kvæmd­irn­ar hljóð­aði upp á 105 millj­­ón­ir króna og gras­strá sem gróð­ur­­­sett voru í kring­um bygg­ing­una kost­uðu 757 þús­und krón­­ur. Fram­kvæmdum er enn ólokið en tölu­verð vinna er eft­ir í við­bygg­ing­unni, þar sem til stend­ur að opna frum­kvöðla­set­ur. Fram­kvæmdin er nú til skoð­unar hjá innri end­ur­skoðun Reykja­vík­ur­borg­ar.

Auglýsing
Í þætt­inum í kvöld segir Dag­ur, sem verið hefur í veik­inda­leyfi und­an­farnar vikur en snéri aftur til starfa í upp­hafi viku, einnig að stans­lausar kröfur um afsögn sé nýr tónn í borg­ar­stjórn. „Að hvað sem aflaga fer þá eigi borg­ar­stjóri að fara frá. Þetta mál [bragga­mál­ið] er nú hjá innri end­ur­skoð­un. Við erum að fara yfir það. Ég kveinka mér ekk­ert undan því að mín ábyrgð eða ann­arra verði rædd þegar nið­ur­stöð­urnar liggja fyr­ir. En mér finnst þetta dæmi um mál sem eru mik­il­væg, alvar­leg, fara svo­lítið fljótt ofan í póli­tískar skot­grafir áður en að öll kurl eru komin til graf­ar. Og ég er ekki viss um það að nota stór orð áður en gögnin liggja á borð­inu sé skyn­sam­leg leið til þess að nálg­ast umræðu yfir höf­uð.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent