Um helmingur einstæðra foreldra í leiguhúsnæði

Af heimilum með börn voru 22,5 prósent á leigumarkaði árið 2016 en meðal barnlausra heimila var hlutfallið hærra eða 28,8 prósent.

Laugavegur um sumar
Auglýsing

Fólk sem var eitt í heim­ili var mun lík­legra til að vera á leigu­mark­aði en á heim­ilum þar sem voru tvö full­orðin eða fleiri. Árið 2016 var 41 pró­sent ein­stak­lings­heim­ila á leigu­mark­aði, 48,3 pró­sent karla sem bjuggu einir og 32,5 pró­sent kvenna í sömu stöðu. Um helm­ingur ein­stæðra for­eldra, eða 51,8 pró­sent, bjó í leigu­hús­næði árið 2016.

Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum lífs­kjara­rann­sóknar Hag­stofu Íslands fyrir árin 2004 til 2016 sem birt­ust í dag á vef­síðu stofn­un­ar­inn­ar.

Rúm­lega fjórð­ungur heim­ila, eða 26,4 pró­sent, var á leigu­mark­aði árið 2016 eða áætlað um 35.100 heim­ili. Á sama tíma voru 73,6 pró­sent heim­ila í eigin hús­næði eða um 97.500 heim­ili.

Auglýsing

Af heim­ilum með börn voru 22,5 pró­sent á leigu­mark­aði en meðal barn­lausra heim­ila var hlut­fallið hærra eða 28,8 pró­sent.

Hlutfall einstæðra á leigumarkaði Mynd: Hagstofan

Tekju­lágir frekar á leigu­mark­aði

Þegar litið er á stöðu fólks í lægsta fimmt­ungi ráð­stöf­un­ar­tekna árið 2016 voru 44,2 pró­sent á leigu­mark­aði á meðan hlut­fallið var 6,6 pró­sent í hæsta tekju­fimmt­ungi. Af þessu má sjá að eftir því sem ráð­stöf­un­ar­tekjur eru hærri, því lægra hlut­fall er á leigu­mark­aði, að jafn­að­i. 

Þegar staðan árið 2016 er borin saman við árið 2004, þegar lífs­kjara­rann­sóknin var fyrst lögð fyr­ir, jókst hlut­fall leigj­enda í lægsta tekju­fimmt­ung­inum um 77 pró­sent. Hins vegar var ekki mark­tæk breyt­ing á hlut­falli leigj­enda í þeim hópi sem hafði hæstar tekjur milli áranna tveggja.

Hlut­fall fólks á leigu­mark­aði árið 2016 tengd­ist einnig aldri. Hæst var hlut­fall á leigu­mark­aði meðal fólks á aldr­inum 25 til 34 ára eða 38,8 pró­sent, en lægst í elstu ald­urs­hóp­un­um. Um 22,8 pró­sent barna 0 til 17 ára bjó í leigu­hús­næði árið 2016. Þetta er vöxtur um 85 pró­sent miðað við árið 2004 er hlut­fallið var 12,3 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent