Stjórn Icelandair Group hefur gert kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í flugfélaginu WOW air. Kaupin eru meðal annars gerð með fyrirvara um samþykki hluthafafundar Icelandair Group, samþykki Samkeppniseftirlitsins og niðurstöðu áreiðanleikakönnunar. Þetta kemur fram í frétt RÚV.
Í tilkynningu vegna kaupanna kemur fram að sem gagngjald fyrir hlutafé WOW Air muni hluthafar WOW air, að uppfylltum skilyrðum, eignast alls 272.341.867 hluti eða sem samsvarar um 5,4 prósent hlutafjár Icelandair Group eftir viðskiptin. Þar af séu 178.066.520 hlutir eða sem nemur 3,5 prósent hlutafjár gagngjald fyrir hið selda hlutafé. Það gagngjald geti hækkað í 4,8 prósent og lækkað í 0,0 prósent út frá ákveðnum forsendum í tengslum við áreiðanleikakönnun. 94.275.347 hlutir eða sem samsvarar 1,8 prósent hlutafjár séu gefin út til seljenda vegna breytingar á víkjandi láni í hlutafé. Seljendur hafi skuldbundið sig til að halda hlutum sínum í Icelandair Group í að minnsta kosti 6 mánuði og helming hlutanna í að minnsta kosti 6 mánuði til viðbótar.
Boðað verður til hluthafafundar Icelandair Group á næstu dögum þar sem tekin verður endanleg ákvörðun um kaupin.
Samkvæmt tilkynningunni verða félögin áfram rekin undir sömu vörumerkjum en sameiginleg markaðshlutdeild þeirra á markaðnum yfir Atlantshafið er um 3,8 prósent. Með yfirtökunni skapist tækifæri til sóknar á nýja markaði og auk þess sé gert ráð fyrir að einingakostnaður Icelandair Group muni lækka. Félagið verði þannig enn betur í stakk búið til þess að veita erlendum flugfélögum öfluga samkeppni á hinum alþjóðlega flugmarkaði.
Bogi Nils Bogason, starfandi forstjóri Icelandair Group, segir við tilefnið að WOW air hafi á undanförnum árum byggt upp sterkt vörumerki og náð miklum árangri á mörkuðum félagsins, til og frá Íslandi og yfir Atlantshafið. Það séu mikil tækifæri til hagræðingar en félögin verði áfram rekin á eigin forsendum undir eigin vörumerkjum og flugrekstrarleyfum. „Íslensk ferðaþjónusta er grunnstoð í íslensku hagkerfi og það er mikilvægt að flugsamgöngur til og frá landinu séu í traustum skorðum,” segir hann.