Icelandair Group kaupir WOW air

Stjórn Icelandair Group hefur gert kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í flugfélaginu WOW air.

wow air
Auglýsing

Stjórn Icelandair Group hefur gert kaup­samn­ing um kaup á öllu hlutafé í flug­fé­lag­inu WOW air. Kaupin eru meðal ann­ars gerð með fyr­ir­vara um sam­þykki hlut­hafa­fundar Icelandair Group, sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og nið­ur­stöðu áreið­an­leika­könn­un­ar. Þetta kemur fram í frétt RÚV.

Í til­kynn­ingu vegna kaupanna kemur fram að sem gagn­gjald fyrir hlutafé WOW Air muni hlut­hafar WOW air, að upp­fylltum skil­yrð­um, eign­ast alls 272.341.867 hluti eða sem sam­svarar um 5,4 pró­sent hluta­fjár Icelandair Group eftir við­skipt­in. Þar af séu 178.066.520 hlutir eða sem nemur 3,5 pró­sent hluta­fjár gagn­gjald fyrir hið selda hluta­fé. Það gagn­gjald geti hækkað í 4,8 pró­sent og lækkað í 0,0 pró­sent út frá ákveðnum for­sendum í tengslum við áreið­an­leika­könn­un. 94.275.347 hlutir eða sem sam­svarar 1,8 pró­sent hluta­fjár séu gefin út til selj­enda vegna breyt­ingar á víkj­andi láni í hluta­fé. Selj­endur hafi skuld­bundið sig til að halda hlutum sínum í Icelandair Group í að minnsta kosti 6 mán­uði og helm­ing hlut­anna í að minnsta kosti 6 mán­uði til við­bót­ar.

Boðað verður til hlut­hafa­fundar Icelandair Group á næstu dögum þar sem tekin verður end­an­leg ákvörðun um kaup­in.

Auglýsing

Sam­kvæmt til­kynn­ing­unni verða félögin áfram rekin undir sömu vöru­merkjum en sam­eig­in­leg mark­aðs­hlut­deild þeirra á mark­aðnum yfir Atl­ants­hafið er um 3,8 pró­sent. Með yfir­tök­unni skap­ist tæki­færi til sóknar á nýja mark­aði og auk þess sé gert ráð fyrir að ein­inga­kostn­aður Icelandair Group muni lækka. Félagið verði þannig enn betur í stakk búið til þess að veita erlendum flug­fé­lögum öfl­uga sam­keppni á hinum alþjóð­lega flug­mark­aði.

Bogi Nils Boga­son, starf­andi for­stjóri Icelandair Group, segir við til­efnið að WOW air hafi á und­an­förnum árum byggt upp sterkt vöru­merki og náð miklum árangri á mörk­uðum félags­ins, til og frá Íslandi og yfir Atl­ants­haf­ið. Það séu mikil tæki­færi til hag­ræð­ingar en félögin verði áfram rekin á eigin for­sendum undir eigin vöru­merkjum og flug­rekstr­ar­leyf­um. „Ís­lensk ferða­þjón­usta er grunn­stoð í íslensku hag­kerfi og það er mik­il­vægt að flug­sam­göngur til og frá land­inu séu í traustum skorð­u­m,” segir hann. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent