„Undir liggur velferð þjóðarinnar“

Ásmundur Einar Daðason segir að íslensku samfélagi hafi ekki tekist að halda fasteignaverði lægra en verðlagi. Nú þurfi að byggja nægjanlega mikið til að snúa þeirri þróun við.

Ásmundur Einar Daðason
Auglýsing

Ásmundur Einar Daða­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, segir að það þurfi að byggja um tvö þús­und íbúðir á ári hér­lendis næstu tíu árin. 

­Tryggja þurfi að 20 til 25 pró­sent af þeim verði félags­legar íbúð­ir, íbúðir fyrir náms­menn eða tekju­lága. Hann seg­ist trúa því að hægt verði að ná sam­komu­lagi um slíkt við sveit­ar­fé­lögin á Stór-Reykja­vík­ur­svæð­inu og að allir verði „til­búnir til þess að leggja sitt að mörkum til að ná þessu sam­eig­in­lega mark­miði. Vegna þess að undir liggur vel­ferð þjóð­ar­inn­ar, hús­næð­is­mark­að­ur­inn og þessir kjara­samn­ingar sem eru framund­an.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­son­ar, rit­stjórna Kjarn­ans, við Ásmund Einar í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut sem frum­sýndur verður í kvöld. Þar ræðir hann ítar­lega um það hvernig hið opin­bera geti komið að því að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga með mögu­legum breyt­ingum á skatt­kerfi, bóta­kerfum og með aðkomu að sátt um upp­bygg­ingu hús­næð­is. Hægt er að sjá stiklu úr þætti kvölds­ins hér að neð­an.



Fyrir liggur að mjög mikil mis­mun­andi er hversu mik­inn þátt sveit­ar­fé­lög á höf­uð­borg­ar­svæð­inu taka þátt í upp­bygg­ingu félags­legs hús­næð­is. 

Kjarn­inn greindi til að mynda frá því í morgun að 76 pró­sent slíks á svæð­inu sé í Reykja­vík. Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, kall­aði eftir því í 21 í síð­ustu viku að sett yrðu lög sem skikk­uðu önnur sveit­ar­fé­lög til að sinna þessum hluta og láta ákveðið hlut­fall lóða sinna undir upp­bygg­ingu félags­legs hús­næð­is.

Auglýsing
Ásmundur Einar von­ast til þess að til slíkrar laga­setn­ingar þurfi ekki að koma, heldur sé hægt að leysa málið í samn­inga­við­ræðum við sveit­ar­fé­lög í námunda við Reykja­vík. Það sam­tal sé þegar haf­ið. „Það sem við erum að und­ir­búa núna er miklu þétt­ara sam­tal við sveit­ar­fé­lög­in, ekki bara hér á höf­uð­borg­ar­svæð­inu heldur á Stór-Reykja­vík­ur­svæð­in­u.[...]Okkur hefur ekki tek­ist sem sam­fé­lagi að halda fast­eigna­verð­inu þannig niðri að það hefur á und­an­förnum árum verið að hækka meira en annað verð­lag í land­inu. Þar af leið­andi hefur það verið að éta upp kjara­bætur sem hafa kom­ið. Núna verðum við sem sam­fé­lag að geta náð utan um það að við séum að byggja nægj­an­lega mikið til þess að fast­eigna­verð á næstu árum hætti að hækka svona mikið umfram verð­lag.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent