Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, var í Héraðsdómi Reykjavíkur sakfelldur fyrir innherjasvik. Guðný Arna Sveinsdóttir, fyrrverandi fjármálastjóri bankans, var aftur á móti sýknuð. Dómur í málinu var kveðinn upp í morgun. Finnur Þór Vilhjálmsson, saksóknari í málinu, fór fram á að Hreiðari Má yrði gerð auka refsing vegna málsins. Þetta kemur fram í frétt RÚV.
Hreiðar Már var hins vegar ekki gerð refsing en hann hefur hlotið samtals 7 ára fangelsisdóma. Síðasti dómurinn fór út fyrir refsiramma efnahagsbrota vegna ítrekaðra brota Hreiðars, segir í frétt RÚV. Finnur Vilhjálmsson saksóknari fór fram á að farið yrði út fyrir refsirammann í þessu máli og að Hreiðari Má yrði gerð auka refsing um 12 til 15 mánuði til viðbótar. Brot hans í þetta sinn væri alvarlegt trúnaðarbrot og það fyrsta þar sem hann hafi auðgast persónulega. Farið var fram á 6 til 9 mánaða fangelsi yfir Guðnýju Örnu.
Hreiðari Má var gefið að sök að hafa misnotað aðstöðu sína gróflega með því að láta Kaupþing veita einkahlutafélagi sínu tæplega 600 milljóna króna eingreiðslulán, sem hann hafi fengið án þess að fyrir lægi samþykki stjórnar eða fullnægjandi trygging. Ákæran var gefin út í september 2016.
Hreiðar hafi svo keypt hlutabréf í bankanum fyrir 246 milljónir í eigin nafni samkvæmt kauprétti. Þetta gerðist þann 6. ágúst 2008. Sama dag hafi svo einkahlutafélag hans sjálfs keypt hlutina af honum fyrir 572 milljónir króna, sem var fjármagnað með láninu sem hann fékk hjá Kaupþingi. Mismunurinn, 324 milljónir króna, rann svo inn á bankareikning Hreiðars Más seinna í sama mánuði og hann hafi því grætt þá upphæð á viðskiptunum. Lánið var á gjalddaga árið 2011, en þá var búið að taka einkahlutafélagið til gjaldþrotaskipta.
Í ákærunni sagði að hafa yrði í huga við hvaða aðstæður og á hvaða tíma þetta átti sér stað, hlutabréfaverð hefði fallið verulega á þessum tíma.
Héraðssaksóknari sagði í ákærunni að Hreiðar Már hefði á þessum tíma búið yfir innherjaupplýsingum um að skráð markaðsverð hlutabréfa í bankanum hefði ekki gefið rétta mynd af verðmæti þeirra heldur verið hærri en efni stóðu til vegna „langvarandi og stórfelldrar markaðsmisnotkunar með hlutabréf í bankanum“ frá nóvember 2007, sem hann sjálfur átti þátt í.
Guðný Arna var ákærð fyrir hlutdeild í umboðssvikum. Hún var sögð hafa aðstoðað við að koma þeim fram, sérstaklega með fyrirmælum og samskiptum við lægra setta starfsmenn bankans um uppgjör og frágang vegna verðbréfaviðskipta og lánveitinga til félags Hreiðars Más. Hún hefði vitað eða henni ekki getað dulist að ófullnægjandi tryggingar væru fyrir lánveitingu.