Hluthafafundur hjá Icelandair fer fram 30. nóvember þar sem fjallað verður um kaup félagsins á WOW air og lögð fyrir fundinn til samþykkis.
Á fundinum verður fjallað um þrjár tillögur, samkvæmt tilkynningu Icelandair til kauphallar. Fyrir utan samþykki hluthafafundar á köpunum eru það tillögur um heimild stjórnar um hlutafjárhækkun fyrir kaupverðinu og síðan tillaga um heimild um hlutafjárhækkun
„Stjórn félagsins er heimilt að hækka hlutafé félagsins um allt að kr. 334.905.779 að nafnverði (krónur þrjúhundruð þrátíu og fjórar milljónir níuhundruð og fimm þúsund sjöhundruð sjötíu og níu), með áskrift nýrra hluta. Gengi skal vera samkvæmt kaupsamningi um kaup á WOW. Hlutirnir skulu tilheyra sama hlutaflokki og annað hlutafé í félaginu. Hluthafar hafa ekki forgangsrétt til áskriftar að hinum nýju hlutum. Hinir nýju hlutir skulu veita réttindi í félaginu frá skrásetningardegi hlutafjárhækkunarinnar. Stjórn getur sett nánari reglur um sölu hlutanna. Heimild stjórnar til hlutafjárhækkunar samkvæmt þessari málsgrein fellur niður þann 1.12.2019 að því marki sem hún er þá enn ónotuð,“ segir í tilkynningunni.
Kaupin voru meðal annars gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins og niðurstöðu áreiðanleikakönnunar.
Sem gagngjald fyrir hlutafé WOW Air munu hluthafar WOW air, að uppfylltum skilyrðum, eignast alls 272.341.867 hluti eða sem samsvarar um 5,4% hlutafjár Icelandair Group eftir viðskiptin. Þar af eru 178.066.520 hlutir eða sem nemur 3,5% hlutafjár gagngjald fyrir hið selda hlutafé. „Það gagngjald getur hækkað í 4,8% og lækkað í 0,0% út frá ákveðnum forsendum í tengslum við áreiðanleikakönnun. 94.275.347 hlutir eða sem samsvarar 1,8% hlutafjár eru gefin út til seljenda vegna breytingar á víkjandi láni í hlutafé. Seljendur hafa skuldbundið sig til að halda hlutum sínum í Icelandair Group í a.m.k. 6 mánuði og helming hlutanna í a.m.k. 6 mánuði til viðbótar,“ sagði í tilkynningu vegna kaupanna.
Á hluthafafundinum 30. nóvember verður fjallað um heimild stjórnar til að hækka hlutaféð.
„Stjórn félagsins er heimilt að hækka hlutafé félagsins um allt að kr. 625.000.000,- að nafnverði (krónur sexhundruðtuttuguogfimmmilljónir). Stjórn skal ákvarða útboðsgengi og greiðslukjör hinna nýju hluta og í hvaða áföngum heimildin verður nýtt. Stefnt er að því að hlutirnir, að hluta eða öllu leyti, verði boðnir þeim aðilum til kaups, sem eru hluthafar í félaginu í dagslok 30. nóvember næstkomandi. Hlutirnir tilheyra sama hlutaflokki og annað hlutafé í félaginu. Um hömlur á viðskipti með hina nýju hluti og skyldu til innlausnar gilda samþykktir félagsins og gildandi lög. Hinir nýju hlutir skulu veita réttindi í félaginu frá skrásetningardegi hlutafjárhækkunarinnar. Stjórn getur sett nánari reglur um sölu hlutanna. Heimild stjórnar til hlutafjárhækkunar samkvæmt þessari málsgrein fellur niður 1.12.2019 að því marki sem hún er þá enn ónotuð,“ segir í tilkynningunni.