Segir búið að leysa bráðavanda barna með fíkn sem komast ekki í meðferð

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismála, segir að það þurfi ekki lengur að vista börn í fangaklefum sem hafa lent í því að hafa ekki aðgang að úrræði vegna fíknar sinnar.

Ásmundur Einar Daðason
Auglýsing

„Við erum, vil ég meina, búin að leysa hann með þeim aðgerðum sem við erum að ráð­ast í á Stuðlum á síð­ustu vikum þannig að það á ekki að þurfa að vísa börnum frá sem koma inn í kerf­ið.“ Þetta segir Ásmundur Einar Daða­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, um bráða­vanda ungra ein­stak­linga sem glíma við fíkni­vanda.

Í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­­son­­ar, rit­­stjóra Kjarn­ans, við Ásmund Einar í sjón­­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut sem frum­­sýndur var á mið­viku­dags­kvöld ræðir hann um stig­vax­andi fíkni­vanda sem íslenskt sam­fé­lag glímir við og skort á með­ferð­ar­úr­ræðum til að takast á við þann vanda. Ein birt­ing­ar­mynd þeirrar stöðu er að yfir 600 manns bíða nú eftir því að kom­ast í með­ferð vegna fíkn­ar. Hægt er að horfa á stiklu úr þætt­inum hér að neð­an.

Stjórn­völd hafa legið undir gagn­rýni vegna skorts á með­ferð­ar­úr­ræð­um, sér­stak­lega sér­hægðum úrræðum fyrir ungt fólk. Vegna þessa stendur nú yfir und­ir­skrifta­söfnun til að þrýsta á stjórn­völd að auka þegar í stað árleg fram­lög til sjúkra­húss­ins á Vogi um 200 millj­ónir króna til að útrýma biðlistum eftir áfeng­is- og vímu­efna­með­gerð, en þar eru ein­ungis 138 pláss í boði. Það er sama magn og var í boð fyrir slíka með­ferð árið 1976.

Þeir sem standa að þessu þjóð­ar­átaki til varnar sjúkra­hús­inu Vogi munu svo halda tón­leika í kvöld klukkan 20. Þegar þetta er skrifað hafa 11.491 skrifað undir und­ir­skrift­ar­list­ann.

Auglýsing
Ásmundur Einar segir að hann muni mæta á þá tón­leika og hlusta eftir því sem verið er að segja. Aðspurður um hvernig hann vilji bregð­ast við yfir­stand­andi bráða­vanda segir hann að málið sé tví­þætt, ann­ars vegar sé um félags­legt mál og hins vegar heil­brigð­is­mál. „Það sem snýr að börnum og þeim sem eru ekki lög­ráða snýr meira að félags­mála­ráðu­neyt­inu. Við höfum verið að setja mik­inn kraft í þetta. Það eru nýir fjár­munir á næsta ári í þessi mál fyrir börn­in. Við erum núna búin að vera í vinnu, og ráðu­neytið og póli­tíkin hafa verið að reyna að aðstoða við það að flýta þess­ari lóð undir þetta heim­ili sem þarf að byggja. Fram að þeim þeim tíma höfum við verið að gera breyt­ingar síð­ustu vik­urnar á Stuðlum sem miða að því að það þurfi aldrei að vista börn í fanga­klefum sem hafa verið að lenda í því að það er ekki úrræði til stað­ar. Ástæðan að það er ekki úrræði til staðar er sú að heil­brigð­is­hlut­inn og félags­hlut­inn hafa ekki verið að tala nægi­lega vel saman vegna þess að fyrstu klukku­tím­arnir og dag­arnir af þess­ari með­ferð er eig­in­lega heil­brigðisúr­ræði. Þannig að við höfum verið að brjóta niður múr­anna þarna á milli og láta menn tala sam­an.“

Hægt er að horfa á við­talið við Ásmund Einar í heild sinni hér að neð­an.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent