Björn Ingi Hrafnsson hefur stofnað nýjan vefmiðil, Viljinn.is. Hann greindi frá þessu á Facebook-síðu sinni fyrr í dag. Þar segir að formleg opnun verði á næstu dögum en miðillinn hefur enn sem komið er ekki verið skráður hjá fjölmiðlanefnd.
Á heimasíðu miðilsins kemur fram að Björn Ingi sé ritstjóri hans og að útgefandi sé Hrafn Björnsson, faðir hans. Rétthafi lénsins er fyrirtækið Glerfilmur ehf. í eigu Hrafns. Þar segir enn fremur að uppi séu „kjöraðstæður fyrir nútímalegan og borgaralega sinnaðan vefmiðil sem hefur góða blaðamennsku að höfuðmarkmiði og veitir almenningi þá mikilvægu þjónustu að sía það markverðasta úr upplýsingaflóðinu og vera allt í senn virk fréttaveita og um leið vettvangur fyrir þjóðfélagsumræðuna og aðgangur að hagnýtum og nauðsynlegum upplýsingum.
Viljinn er slíkur miðill. Hann hefur skoðun á málum, vill að betur sé hugað að eldri borgurum og barnafjölskyldum, vill huga að gömlum og góðum gildum og telur að gera þurfi stórátak í húsnæðismálum til að skapa sátt milli kynslóðanna. Viljinn er öðrum þræði hugveita fyrir áhugaverðar tillögur um það sem betur má fara og mun m.a. gangast fyrir ráðstefnum, skoðanakönnunum og fleiru.“
Viljinn verður fjármagnaður með sölu auglýsinga og beinum stuðningi lesenda.
Ég var að verða níu ára vestur á Flateyri við Önundarfjörð þegar ég ákvað að verða blaðamaður. Ég stofnaði þá blaðið...
Posted by Björn Ingi Hrafnsson on Saturday, November 10, 2018
Stýrði Pressunni
Björn Ingi, sem er fyrrverandi borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, var lengst af helsti forsvarsmaður Pressusamstæðunnar og einn stærsti eigandi. Hann missti yfirráð yfir henni í fyrra og Pressan var tekin til gjaldþrotaskipta í desember 2017.
Kjarninn greindi frá því í október að skiptastjóri þrotabús Pressunnar vilji láta rifta ráðstöfunum á fjármunum upp á samtals um 400 milljónir króna.
Málin hafa þegar verið þingfest í héraði en ekki til lykta leidd, en að mati skiptastjóra, Kristjáns B. Thorlacius hrl., var jafnfræðis ekki gætt meðal kröfuhafa félagsins í þeim tilvikum þar sem nú hefur verið óskað eftir riftun.
Kristján varðist frétta af málinu, í samtali við Kjarnann, og vildi ekki veita upplýsingar um þessi riftunarmál sem Kjarninn hefur heimildir fyrir að nú séu komin inn á borð dómstóla.
amtals var kröfum upp á 315 milljónir króna lýst í þrotabú Pressunnar og um 235 milljónum króna í bú DV ehf., sem var í eigu Pressunnar.
Almennar kröfur voru upp á 183,5 milljónir króna og var stærsta krafan frá Tollstjóra vegna opinberra gjalda, að því er fram kom í frétt RÚV í maí síðastliðnum.
Rekstur Pressunnar hafði lengi verið í fullkomnu uppnámi áður en félagið var loks tekið til gjaldþrotaskipta, enda skuldaði félagið meðal annars lífeyrissjóðum, stéttarfélögum og hinu opinbera hundruð milljóna króna.
Slíkt er vitaskuld óheimilt samkvæmt lögum, og refsing viðlögð við því að standa ekki skila á þessum gjöldum, fyrir ábyrgðarmenn rekstursins.
Rétt áður en Pressan varð gjaldþrota, keypti félagið Frjáls fjölmiðlun ehf., sem Sigurður G. Guðjónsson hrl. á, stóran hluta af eignum Pressunnar.
Meðal annars voru það DV, Pressan, Eyjan, Bleikt og 433.is. Síðan þá hafa flestir fjölmiðlarnir farið undir vef DV.is.
Eigandi Frjálsrar fjölmiðlunar er félagið Dalsdalur ehf. Eini skráði eigandi þess er Sigurður G. Guðjónsson lögmaður sem er einnig skráður fyrirsvarsmaður Frjálsrar fjölmiðlunar hjá Fjölmiðlanefnd.
Ný kennitala og tap
Frjáls fjölmiðlun hóf starfsemi í september 2017. Heildartap fyrir skatta var 54,5 milljónir króna en skattinneign skilaði félaginu 10,9 milljón króna í tekjur sem töldu á móti.
Alls eru eignir Frjálsrar fjölmiðlunar metnar á 529 milljónir króna. Þar af eru óefnislegar eignir bókfærðar á 470 milljónir króna.
Skuldir félagsins, sem er ein stærsta einkarekna fjölmiðlasamsteypa landsins, voru 542 milljónir króna um síðustu áramót og var stofnað til þeirra á síðasta ári. Þar munar mest um 425 milljón króna skuld við eigandann, Dalsdal ehf. Sú skuld, sem virðist vaxtalaus, á að greiðast til baka á árunum 2018 til 2022, 85 milljónir króna á ári. Ekki kemur fram í ársreikningi Dalsdals ehf. hver lánaði því félagi fjármagn til að lána Frjálsri fjölmiðlun en þar segir að Dalsdalur eigi að greiða þeim aðila alla upphæðina til baka í ár, 2018.
Þá kemur fram í ársreikningi Frjálsrar fjölmiðlunar að ógreitt kaupverð eigna væri 53 milljónir króna í árslok 2017. Eigið fé félagsins var neikvætt um 13,3 milljónir króna um síðustu áramót, inngreitt hlutafé var 30 milljónir króna og félagið átti 14,6 milljónir króna í handbæru fé.