Búast má við skipulagsbreytingum og hærra flugmiðaverði

Vonast er til að töluverð samlegðaráhrif skapist við kaup Icelandair á WOW air, sem meðal annars verður hægt að ná fram með hagræðingu í starfsmannafjölda og betri nýtingu á starfsfólki.

Icelandair og WOW air
Auglýsing

Gangi kaup Icelandair Group á WOW air eftir má búast við því að flug­miða­verð hækki og að ráð­ist verði í skipu­lags­breyt­ingar innan sam­ein­aðar sam­stæðu. Slíkum breyt­ingum myndu fylgja sam­legð­ar­á­hrif sem náð yrði fram með hag­ræð­ingu, meðal ann­ars fækkun starfa. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ítar­legri frétta­skýr­ingu Kjarn­ans um sam­ein­ing­una sem birt var í gær.

Morg­un­blaðið greinir svo frá því í morgun að vegna for­gangs­rétt­ar­á­kvæðis í samn­ingum við Icelandair gætu félags­menn í Félagi íslenskra atvinnu­flug­manna (FÍA) átt for­gang á flug í flug­vélum WOW air. Það myndi þýða að flug­menn sem vinna hjá WOW air yrðu á sama kjara­samn­ingi og flug­menn Icelanda­ir, en sem stendur eru þeir í sér stétt­ar­fé­lagi. Sam­kvæmt samn­ingi FÍA við Icelandair getur félagið ekki stofnað sér­stakt lág­far­gjalda­flug­fé­lag þar sem flug­menn fá önnur kjör en þeir sem fljúga fyrir móð­ur­fé­lag­ið. Sama hljóti þá að eiga við ef Icelandair yfir­tekur slíkt lág­far­gjalda­flug­fé­lag.

Morg­un­blaðið segir að það sé erfitt að sjá hvernig sam­ein­ing félag­anna tveggja ætti að ganga upp ef flug­menn WOW air njóti sömu starfs­kjara og kollegar þeirra hjá Icelanda­ir, þar sem nýt­ing á flug­mönnum WOW air sé mun betri eins og stend­ur.

Icelandair búið að glíma við umtals­verðan vanda

Icelandair hefur sjálft átt í umtals­verðum rekstr­ar­vand­ræðum und­an­farin miss­eri. Breyt­ingar á leið­ar­kerfi og mark­aðs­starfi sem ráð­ist var í í fyrra reynd­ust afleitar og vegna fyrstu tveggja fjórð­unga árs­ins voru sendar afkomu­við­var­­anir vegna þess að nið­­ur­­staða þeirra var langt undir vænt­ing­­um. Þessi staða gerði það að verkum að Björgólfur Jóhanns­­son, sem hafði verið for­­stjóri Icelandair í tíu ár, sagði af sér í lok ágúst. Með því vildi hann axla ábyrgð á ofan­­greindum breyt­ing­um, sem teknar höfðu verið á hans vakt.

Auglýsing
Vegna þessa hríð­­féll mark­aðsvirði Icelanda­ir. Það var um 189 millj­­arðar króna fimmt­u­dag­inn 28. apríl 2016 en var 38 millj­arðar króna þegar til­kynnt var um kaupin á WOW air.

Það sem var jákvætt var að Icelandair hafði byggt upp umtals­vert eigið fé á síð­­­ustu árum og var því ágæt­­lega í stakk búið til að takast á við sveifl­­ur. Eigið fé í lok sept­em­ber var um 70 millj­­arðar króna, en hafði lækkað um 2,6 millj­­arða króna það sem af var ári. Þessi staða gerði það að verkum að Icelandair braut skil­mála skulda­bréfa­flokka sem félagið hafði gefið út og er sem stendur í við­ræðum við eig­endur þeirra um að end­ur­semja vegna þessa. Stærstu hlut­hafar félags­­­ins eru íslenskir líf­eyr­is­­­sjóð­ir, en stærsti hlut­haf­inn er Líf­eyr­is­­­sjóður versl­un­­­ar­­­manna með 13,99 pró­­­sent hlut.

Tölu­verð sam­legð­ar­á­hrif

Við­mæl­endur Kjarn­ans segja að það séu tölu­verð sam­legð­ar­á­hrif sem skap­ist við kaupin á WOW air, sem meðal ann­ars verður hægt að ná fram með hag­ræð­ingu í starfs­manna­fjölda. Mark­aðs­starf síð­ar­nefnda félags­ins á net­inu sé auk þess mjög gott og bók­un­ar­kerfi þess hag­kvæmt. En það býst eng­inn sem við er rætt við öðru en að seglin verði dregin veru­lega sam­an, vélum sem eru á leigu verði skilað og starfs­fólki fækk­að.

Óhjá­kvæmi­legt sé að flug­miða­verð fari í kjöl­farið hækk­andi. Þá megi búast við því að upp­stokkun verði á skipu­lagi innan Icelandair Group þegar og ef yfir­takan á WOW air gengur í gegn.

Fréttin er að mestu unnin upp úr hlið­ar­efni með frétta­skýr­ingu Kjarn­ans um kaup Icelandair Group á WOW air sem birt­ist í gær, föstu­dag.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent