Björn Ingi stofnar nýjan „borgaralega sinnaðan“ fjölmiðil

Fyrrverandi stjórnandi og aðaleigandi Pressusamstæðunnar, sem fór í þrot í fyrra, hefur stofnað nýjan fjölmiðil.

Björn Ingi Hrafnsson.
Björn Ingi Hrafnsson.
Auglýsing

Björn Ingi Hrafns­son hefur stofnað nýjan vef­mið­il, Vilj­inn.is. Hann greindi frá þessu á Face­book-­síðu sinni fyrr í dag. Þar segir að form­leg opnun verði á næstu dögum en mið­ill­inn hefur enn sem komið er ekki verið skráður hjá fjöl­miðla­nefnd

Á heima­síðu mið­ils­ins kemur fram að Björn Ingi sé rit­stjóri hans og að útgef­andi sé Hrafn Björns­son, faðir hans. Rétt­hafi léns­ins er fyr­ir­tækið Glerfilmur ehf. í eigu Hrafns. Þar segir enn fremur að uppi séu „kjörað­stæður fyrir nútíma­legan og borg­ara­lega sinn­aðan vef­miðil sem hefur góða blaða­mennsku að höf­uð­mark­miði og veitir almenn­ingi þá mik­il­vægu þjón­ustu að sía það mark­verð­asta úr upp­lýs­inga­flóð­inu og vera allt í senn virk frétta­veita og um leið vett­vangur fyrir þjóð­fé­lags­um­ræð­una og aðgangur að hag­nýtum og nauð­syn­legum upp­lýs­ing­um.

Vilj­inn er slíkur mið­ill. Hann hefur skoðun á mál­um, vill að betur sé hugað að eldri borg­urum og barna­fjöl­skyld­um, vill huga að gömlum og góðum gildum og telur að gera þurfi stór­á­tak í hús­næð­is­málum til að skapa sátt milli kyn­slóð­anna. Vilj­inn er öðrum þræði hug­veita fyrir áhuga­verðar til­lögur um það sem betur má fara og mun m.a. gang­ast fyrir ráð­stefn­um, skoð­ana­könn­unum og fleiru.“

Vilj­inn verður fjár­magn­aður með sölu aug­lýs­inga og beinum stuðn­ingi les­enda.

Ég var að verða níu ára vestur á Flat­eyri við Önund­ar­fjörð þegar ég ákvað að verða blaða­mað­ur. Ég stofn­aði þá blað­ið...

Posted by Björn Ingi Hrafns­son on Sat­ur­day, Novem­ber 10, 2018

Stýrði Press­unni

Björn Ingi, sem er fyrr­ver­andi borg­­ar­­full­­trúi Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins, var lengst af helsti for­svar­s­­maður Pressu­sam­stæð­unnar og einn stærsti eig­andi. Hann missti yfir­ráð yfir henni í fyrra og Pressan var tekin til gjald­þrota­skipta í des­em­ber 2017.

Kjarn­inn greindi frá því í októ­ber að skipta­­stjóri þrota­­bús Press­unn­ar vilji láta rifta ráð­­stöf­unum á fjár­­munum upp á sam­tals um 400 millj­­ónir króna.

Málin hafa þegar verið þing­­fest í hér­­aði en ekki til lykta leidd, en að mati skipta­­stjóra, Krist­jáns B. Thor­lacius hrl., var jafn­fræðis ekki gætt meðal kröf­u­hafa félags­­ins í þeim til­­vikum þar sem nú hefur verið óskað eftir rift­un.

Krist­ján varð­ist frétta af mál­inu, í sam­tali við Kjarn­ann, og vildi ekki veita upp­­lýs­ingar um þessi rift­un­­ar­­mál sem Kjarn­inn hefur heim­ildir fyrir að nú séu komin inn á borð dóm­stóla.

amtals var kröfum upp á 315 millj­­ónir króna lýst í þrotabú Pressunnar og um 235 millj­­ónum króna í bú DV ehf., sem var í eigu Press­unn­­ar.

Auglýsing
Kröfulýsingafrestur í þrotabú DV rann út í maí. Meðal krafna voru meðal ann­­ars yfir 50 millj­­óna for­­gangs­­kröfur vegna van­­gold­inna launa og líf­eyr­is­greiðslna.

Almennar kröfur voru upp á 183,5 millj­­ónir króna og var stærsta krafan frá Toll­­stjóra vegna opin­berra gjalda, að því er fram kom í frétt RÚV í maí síð­­ast­liðn­­­um.

Rekstur Pressunnar hafði lengi verið í full­komnu upp­­­námi áður en félagið var loks tekið til gjald­­þrota­­skipta, enda skuld­aði félagið meðal ann­­ars líf­eyr­is­­sjóð­um, stétt­­ar­­fé­lögum og hinu opin­bera hund­ruð millj­­óna króna.

Slíkt er vita­skuld óheim­ilt sam­­kvæmt lög­­um, og refs­ing við­lögð við því að standa ekki skila á þessum gjöld­um, fyrir ábyrgð­­ar­­menn rekst­­ur­s­ins.

Rétt áður en Pressan varð gjald­­þrota, keypti félagið Frjáls fjöl­miðlun ehf., sem Sig­­urður G. Guð­jóns­­son hrl. á, stóran hluta af eignum Press­unn­­ar.

Meðal ann­­ars voru það DV, Pressan, Eyj­an, Bleikt og 433.­is. Síðan þá hafa flestir fjöl­mið­l­­arnir farið undir vef DV.­is.

Auglýsing
Frjáls fjöl­miðlun ehf., sem rekur DV og fleiri fjöl­miðla, tap­aði 43,6 millj­­­ónum króna á þeim tæpu fjórum mán­uðum sem félagið var starf­andi á árinu 2017. Tekjur þess voru 81,4 millj­­­ónir króna frá því að félagið hóf starf­­­semi í sept­­­em­ber 2017 og fram að ára­­­mót­­­um.

Eig­andi Frjálsrar fjöl­mið­l­unar er félagið Dals­dalur ehf. Eini skráði eig­andi þess er Sig­­­urður G. Guð­jóns­­­son lög­­­­­maður sem er einnig skráður fyr­ir­svar­s­­­maður Frjálsrar fjöl­mið­l­unar hjá Fjöl­miðla­­­nefnd.

Ný kennitala og tap

Frjáls fjöl­miðlun hóf starf­­­semi í sept­­­em­ber 2017. Heild­­­ar­tap fyrir skatta var 54,5 millj­­­ónir króna en skatt­inn­­­eign skil­aði félag­inu 10,9 milljón króna í tekjur sem töldu á móti.

Alls eru eignir Frjálsrar fjöl­mið­l­unar metnar á 529 millj­­­ónir króna. Þar af eru óefn­is­­­legar eignir bók­­­færðar á 470 millj­­­ónir króna.

Skuldir félags­­­ins, sem er ein stærsta einka­rekna fjöl­miðla­­­sam­­­steypa lands­ins, voru 542 millj­­­ónir króna um síð­­­­­ustu ára­­­mót og  var stofnað til þeirra á síð­­­asta ári. Þar munar mest um 425 milljón króna skuld við eig­and­ann, Dals­­­dal ehf. Sú skuld, sem virð­ist vaxta­­­laus, á að greið­­­ast til baka á árunum 2018 til 2022, 85 millj­­­ónir króna á ári. Ekki kemur fram í árs­­­reikn­ingi Dals­dals ehf. hver lán­aði því félagi fjár­­­­­magn til að lána Frjálsri fjöl­miðlun en þar segir að Dals­dalur eigi að greiða þeim aðila alla upp­­­hæð­ina til baka í ár, 2018.

Þá kemur fram í árs­­­reikn­ingi Frjálsrar fjöl­mið­l­unar að ógreitt kaup­verð eigna væri 53 millj­­­ónir króna í árs­­­lok 2017. Eigið fé félags­­­ins var nei­­­kvætt um 13,3 millj­­­ónir króna um síð­­­­­ustu ára­­­mót, inn­­­greitt hlutafé var 30 millj­­­ónir króna og félagið átti 14,6 millj­­­ónir króna í hand­­­bæru fé.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent