Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur sent Gylfa Magnússyni formanni bankaráðs Seðlabanka Íslands bréf vegna umfjöllunar um dóm Hæstaréttar í máli Seðlabanka Íslands gegn Samherja hf. þar sem óskað er eftir greinargerð bankaráðs um málið.
Þann 8. nóvember síðastliðinn kvað Hæstiréttur Íslands upp dóm í máli Seðlabanka Íslands gegn Samherja hf. Í dómnum er staðfest niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur um að fella úr gildi ákvörðun Seðlabanka Íslands frá 1. september 2016 um að Samherji hf. skuli greiða 15 milljónir króna í stjórnvaldssekt til ríkissjóðs vegna brota gegn reglum um gjaldeyrismál.
„Hér með óska ég eftir greinargerð bankaráðs um mál Samherja frá þeim tíma sem rannsókn hófst á meintum brotum á reglum um gjaldeyrismál. Sérstaklega er óskað eftir upplýsingum um það hvað lá að baki ákvörðun Seðlabanka Íslands um að endurupptaka málið sem tilkynnt var Samherja hf. 30 mars 2016. Þá óska ég einnig eftir útlistun á því hvort og þá með hvaða hætti Seðlabanki Íslands hyggist bregðast við dómnum og hvort dómsniðurstaðan kalli á úrbætur á stjórnsýslu bankans og þá hvaða,“ segir í bréfi forsætisráðherra.
Ráðuneytið vekur athygli á því að lög um Seðlabanka Íslands séu nú til heildarendurskoðunar í forsætisráðuneytinu og að stefnt sé að framlagningu frumvarps til nýrra heildarIaga um Seðlabanka Íslands á vormánuðum.
Óskað er eftir að greinargerðin berist forsætisráðuneytinu eigi síðar en föstudaginn 7. desember næstkomandi.