Bakkavararbræður taldir eigendur Dekhill Advisors

Í nýrri bók er greint frá því að bræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir séu taldir eigendur Dekhill Advisors Limited af íslenskum skattayfirvöldum.

Bakkavör sept 2018
Auglýsing

Íslensk skatta­yf­ir­völd telja að end­an­legir eig­endur félags­ins Dek­hill Advis­ors Limited, aflands­fé­lags skráð til heim­ilis á Tortóla-eyju, séu bræð­urnir Ágúst og Lýður Guð­munds­syn­ir, oft­ast kenndir við Bakka­vör. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri bók eftir Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarn­ans, sem kemur í versl­anir í dag. Bókin heitir Kaupt­hink­ing: Bank­inn sem átti sig sjálfur og fjallar um ris, fall og eft­ir­mála af starf­semi Kaup­þings, stærsta banka lands­ins fyrir banka­hrun.

Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á 45,8 pró­­sent hlut íslenska rík­is­ins í Bún­­að­­ar­­bank­­anum í jan­úar 2003, sem birt var í fyrra, kom fram að aflands­fé­lagið Dek­hill Advis­ors Limited, skráð á Tortóla, hafi hagn­ast um 46,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala, 2,9 millj­arða króna á þávirði, á fléttu sem ofin var í kringum kaupin á bank­an­um. Á núvirði er upp­hæðin um 5,8 millj­arðar króna.

Auglýsing
Niðurstöður rann­­sókn­­ar­innar sýndu að ítar­­leg gögn styðji að Hauck & Auf­häuser, Kaup­­­þing hf. á Íslandi, Kaupt­hing Bank Lux­em­­bo­­urg og hópur manna sem vann fyrir og í þágu Ólafs Ólafs­­­sonar fjár­­­­­festis hafi not­að leyn­i­­­lega samn­inga til að fela raun­veru­­­legt eign­­­ar­hald þess hlutar sem Hauck & Auf­häuser átti í Bún­­­að­­­ar­­­bank­­­anum í orði kveðn­u. „Í raun var eig­andi hlut­­ar­ins aflands­­fé­lagið Well­ing & Partners, skráð á Tortóla á Bresku Jóm­frú­a­eyj­­um. Með fjölda leyn­i­­legra samn­inga og milli­­­færslum á fjár­­mun­um, m.a. frá Kaup­­þingi hf. inn á banka­­reikn­ing Well­ing & Partners hjá Hauck & Auf­häuser var þýska bank­­anum tryggt skað­­leysi af við­­skipt­unum með hluti í Bún­­að­­ar­­bank­an­­um.“ 

Þar sagði enn fremur að „síð­­­ari við­­skipti á grund­velli ofan­­greindra leyn­i­­samn­inga gerðu það að verk­um, að Well­ing & Partners fékk í sinn hlut rúm­­lega 100 millj­­ónir Banda­­ríkja­dala sem voru lagðar inn á reikn­ing félags­­ins hjá Hauck & Auf­häuser. Snemma árs 2006, eða um þremur árum eftir við­­skiptin með eign­­ar­hlut rík­­is­ins í Bún­­að­­ar­­bank­an­um, voru 57,5 millj­­ónir Banda­­ríkja­dala greiddar af banka­­reikn­ingi Well­ing & Partners til aflands­­fé­lags­ins Mar­ine Choice Limited sem stofnað var af lög­­fræð­i­­stof­unni Mossack Fon­­seca í Panama en skráð á Tortóla. Raun­veru­­legur eig­andi Mar­ine Choice Limited var Ólafur Ólafs­­son. Um svipað leyti voru 46,5 millj­­ónir Banda­­ríkja­dala greiddar af banka­­reikn­ingi Well­ing & Partners til aflands­­fé­lags­ins Dek­hill Advis­ors Limited sem einnig var skráð á Tortóla. Ekki liggja fyrir óyggj­andi upp­­lýs­ingar um raun­veru­­lega eig­endur Dek­hill eða hverjir nutu hags­­bóta af þeim fjár­­munum sem greiddir voru til félags­­ins.“

Kaupthinking: Bankinn sem átti sig sjálfur, kemur í verslanir í dag.Rann­sókn­ar­nefndin spurði m.a. Ágúst og Lýð um félagið skrif­lega. Í svari þeirra sögðu þeir að þá „reki ekki minni til atriða sem því tengjast“. Nú er, líkt og áður sagði, hægt að greina frá því að bræð­urnir Ágúst og Lýður eru taldir vera eig­endur Dek­hill Advis­ors.

Dek­ill Advis­ors ratað aftur í fréttir fyrir rúmum mán­uði síðan þegar Björgólfur Thor Björg­­ólfs­­son, athafna­­maður og fyrr­ver­andi kjöl­­fest­u­eig­andi í Lands­­bank­an­um, sagði í stöð­u­­færslu á vef sínum að þótt því hafi verið vand­­lega haldið leyndu fyrir skatt­rann­­sókn­­ar­­stjóra hverjir eigi Dek­hill Advis­ors þá hafi „ýmsir sem þekkja þokka­­lega til hafa hvíslað því að mér að þar að baki séu stærsti hlut­hafi og æðstu stjórn­­endur Kaup­­þings.“

Ágúst og Lýður voru aðal­eig­endur Exista, stærsta eig­anda Kaup­þings fyrir hrun.

Hægt er að lesa ítar­lega frétta­skýr­ingu um mál­efni Dek­hill Advis­ors hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent