Eins og að rétta samloku að svöngum einstaklingi en kippa henni til baka

Logi Einarsson segir að lækkun á framlögum til aldraðra og öryrkja séu blaut tuska framan í hópa sem skildir voru eftir í góðærinu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir segir að meirihluti fjárlaganefndar hafi verið niðurlægður af ríkisstjórninni.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Auglýsing

„Þetta er ekk­ert ósvipað og labba fram hjá svöngum ein­stak­ling og réttir að honum sam­loku og svo þegar hann ætlar að teygja sig í hana, þá gripur þú hana aftur tekur einn fjórða af henni, hendi henni og labbar í burtu. Þetta er auð­vitað bara blaut tuska framan í þessa hópa sem hafa verið skildir eft­ir.“ 

Þetta segir Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, um þær breyt­ingar að lækka fram­lög til öryrkja um 1,1 millj­arð króna og að fram­lög til upp­bygg­ingar hjúkr­un­ar­heim­ila verði lækkuð um rúman millj­arð króna frá því sem kynnt var í fjár­laga­frum­varp­inu sem lagt var fram í sept­em­ber.

Hann var gestur Þórðar Snæs Júl­í­us­­son­­ar, rit­­stjóra Kjarn­ans, ásamt Þor­gerði Katrínu Gunn­ars­dóttur for­­manni Við­reisnar í sjón­­varps­þætt­inum 21 sem frum­­sýndur var á Hring­braut í gær­kvöldi. Þar ræddu þau breyt­ingar á fjár­­lög­um, umræðu um þriðja orku­­pakk­ann, kjara­­mál, gjald­mið­il­inn og breytta sam­­setn­ingu stjórn­­­mál­anna, svo fátt eitt sé nefnt. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neð­­an.

Logi segir að upp­haf­lega fjár­laga­frum­varpið hafi hvorki náð að tryggja efna­hags­legan né félags­legan stöð­ug­leika. „Núna sjáum við hvað for­sendur fjár­lag­anna voru veik­ar. Þær brustu og nýjar for­sendur lagðar fram. Við það þarf að stoppa upp í eitt­hvað gat. Þá er ráð­ist á þá hópa sem veik­astir standa fyr­ir, hafa ekki notið góð­ær­is­ins og kjara­aukn­ingar í upp­gang­in­um.“

Auglýsing
Þorgerður Katrín segir að meiri­hluti fjár­laga­nefndar hafi verið nið­ur­lægður í mál­inu. „Það er nákvæm­lega þessi nið­ur­skurður til aldr­aðra og öryrkja og þegar upp er staðið nið­ur­læg­ingin sem meiri­hluti fjár­laga­nefndar stendur núna frammi fyr­ir. Rík­is­stjórnin bein­línis tekur málið inn til sín[...] kemur með sínar breyt­ing­ar­til­lög­ur, meðal ann­ars að skera niður til aldr­aðra og öryrkja og skera niður ditt­inn og datt­inn ann­ars stað­ar. En skilur eftir fjár­laga­nefnd­ina með ekk­ert svig­rúm til að koma til móts við ákveðin sjón­ar­mið. Bæði fram­lög sem þarf að fara í, eins og bið biðlista SÁÁ og fleira.“

Hún segir að með þessu sé rík­is­stjórnin og meiri­hluti fjár­laga­nefndar strax farin að hverfa frá mark­miðum sem sett voru fram í fjár­laga­á­ætlun henn­ar. „Síðan á sama tíma og það er verið að skera niður til aldr­aðra og öryrkja þá er verið að keyra í gegnum þing­ið, bók­staf­lega keyra í gegnum þingið veiði­gjöldin og ég held að einmitt núna sé lag til þess að bíða svo­lítið með veiði­gjöldin og lækkun á auð­linda­gjöldum á útgerð­ina.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent