Gæti rýrt traust á ákvörðunum stjórnar FME að vera með dæmda brotamenn í stjórn

Í umsögn Fjármálaeftirlitsins um frumvarp dómsmálaráðherra er það talið geta haft neikvæð áhrif á traust ákvarðana FME ef fólk sem hefur hlotið dóm situr í stjórn.

Sigríður Á. Andersen
Auglýsing

Í umsögn Fjár­mála­eft­ir­lits­ins (FME) um frum­varp dóms­mála­ráð­herra, þar sem meðal ann­ars á að gera á dæmdum brota­mönnum mögu­legt að taka sæti í stjórn FME tíu árum eftir dóm, segir að það gæti rýt traust á ákvörð­unum stjórnar FME, ef sú staða kæmi upp að í henni sætu dæmdir brota­menn. 

„Fjár­mála­eft­ir­litið vill því velta því upp hvort það gæti rýrt traust á slíkum ákvörð­unum stjórnar ef þar sætu menn sem hafa hlotið refsi­dóm,“ segir í umsögn FME.

Eins og greint var frá á vef Kjarn­ans á dög­un­um, þá hefur Alþýðu­sam­band Íslands gagn­rýnt þetta, í umsögn sinni um fyrr­nefnt frum­varp. 

Skýr­ing á því hvers vegna dregið sé úr hæfi mann til að stýra FME er ekki rök­studd í grein­­ar­­gerð.

Auglýsing
Einn liður frum­varps­ins snýr að þvi að breyta lögum um eft­ir­lit með fjár­­­mála­­starf­­semi. Í þeim lögum er fyrir skýrt ákvæði um að stjórn­­­ar­­menn Fjár­­­mála­eft­ir­lits­ins skuli „hafa óflekkað mann­orð og mega ekki í tengslum við atvinn­u­­rekstur hafa hlotið dóm fyrir refsi­verðan verknað sam­­kvæmt almennum hegn­ing­­ar­lögum eða lögum um hluta­­fé­lög, einka­hluta­­fé­lög, bók­hald, árs­­reikn­inga, gjald­­þrot eða þeim sér­­lögum sem gilda um eft­ir­lits­­skylda aðila.“

Fjármálaeftirlitið.

Í til­­lögum Sig­ríðar felst afnám kröf­unnar um að stjórn­­­ar­­menn í FME hafi óflekkað mann­orð. Í umsögn Alþýð­u­­sam­­bands­ins segir hins vegar að auk hennar sé „þeim sem gerst hafa sekir um um alvar­­leg brot á hegn­ing­­ar­lög­um, lögum á sviði fjár­­­mála­­mark­aðar eða félaga eða þolað íþyngj­andi stjórn­­­valds­á­kvarð­­anir sem ein­stak­l­ingar eða for­svar­s­­menn fyr­ir­tækja, veitt sjálf­krafa hæfi að liðum 10 árum eftir hafa verið dæmd­­ir.“

Í umsögn FME um frum­varpið er því velt upp, hvort til­efni sé til þess að gera svo vega­miklar breyt­ingar á lög­un­um, í ljósi þess að ný heild­ar­lög um eft­ir­lit fjár­mála­mark­aðar komi til með sam­ein­ingu FME og Seðla­banka Íslands. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent