Fjárfestingar Eaton Vance hátt í 70 milljarða

Sjóðir í stýringu Eaton Vance áttu ríkisskuldabréf, íslensk hlutabréf og kröfur á íslensk félög fyrir samanlagt um 70 milljarða króna í lok júlí. Hlutabréfaeign sjóðanna nam 29 milljörðum króna en sjóðirnir eiga mest í löngum ríkisskuldabréfum hér á landi

epaselect-china-stock-market_18927884084_o.jpg
Auglýsing

Fjár­fest­ing­ar­sjóðir Eaton Vance Mangement, banda­ríska sjóð­stýr­inga­fyr­ir­tæk­ið, áttu rík­is­skulda­bréf, lán, íslensk hluta­bréf og kröfur á íslensk félög fyrir sam­an­lagt lið­lega 67 millj­örðum króna í lok júlí­mán­aðar á þessu ári. ­Fyr­ir­tækið er umsvifa­mesti erlendi fjár­festir­inn hér á landi og er í hópi tutt­ugu stærstu hlut­hafa í fjöl­mörgum skráðum félög­um. Frá þessu er greint í Mark­að­inum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins, í dag.

Fimm sjóðir í stýr­ingu Eaton Vance áttu þá sam­an­lagt tæpan 31 millj­arð króna í óverð­tryggðum rík­is­skulda­bréfum og 29 millj­arða króna í íslenskum hluta­bréf­um. Að auki hafa sjóð­irnir veitt Almenna leigu­fé­lag­inu og Heima­völlum lán fyrr á árinu fyrir sam­an­lagt ríf­lega átta millj­arða króna. 

Fjár­fest­ingar í íslenskum hluta­bréfum og rík­is­skulda­bréfum

Fjár­fest­ing­ar­sjóð­ir Eaton Vance, hófu inn­reið sína á hér­lendan hluta­bréfa­markað fyrir um þremur árum en í júlí á þessu ári námu fjár­fest­ingar þeirra í íslenskum hluta­bréf­um  sam­an­lagt 232 millj­ónum dala, jafn­virði 28,6 millj­arða króna miðað við núver­andi geng­i. ­Sam­kvæmt yfir­liti yfir fjár­fest­ingar sjóða Eaton Vance, sem var nýlega birt á vef banda­ríska verð­bréfa­eft­ir­lits­ins, áttu sjóð­irnir hluta­bréf í fimmtán skráðum félögum í lok júlí. Það er einkum  ­sjóð­irn­ir Global Macro Absolute Return Advantage og Global Macro Port­folio sem hafa látið hvað mest til sín taka á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði en þeir eru báðir áber­andi á listum yfir stærstu hlut­hafa Kaup­hall­ar­fé­laga sam­kvæmt Mark­að­in­um.

Auglýsing

Sem dæmi má taka að hluta­bréfa­eign þeirra í fast­eigna­fé­lög­unum þrem­ur, Eik, Reg­in, og Reitum nam 8,8 millj­örð­um. Eign ­sjóð­anna í hluta­bréfum trygg­inga­fé­lag­anna þriggja, Sjó­vár, TM og VÍS var sam­an­lagt tæp­lega 4 millj­arðar króna. Ásamt því nam eign sjóð­anna um 4,2 millj­örðum króna í Högum og 4,1 millj­arði króna í Sím­an­um. 

Eaton Vance átti einnig rík­is­skulda­bréf hér á landi fyrir um 248 millj­ónir dala, jafn­virði 30,6 millj­arða króna, í lok júlí og mun­aði þar mestu um eign sjóða félags­ins í löngum bréf­um. Þannig áttu þeir 17 millj­arða króna í skulda­bréfa­flokknum RB31 og ríf­lega 6 millj­arða í flokknum RB28.

Breyt­ingar á eigna­safni þeirra hér á landi

Í umfjöll­un ­Mark­að­ar­ins er greint frá því hvernig nokkrar  breyt­ingar hafa orðið á eigna­safni Eaton Vance hér á landi á síð­ari hluta árs­ins. Sem dæmi seldu sjóðir á vegum sjóða­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins ríf­lega tveggja pró­senta hlut í Icelandair Group í sept­em­ber en ætla má að sölu­verð hlut­ar­ins hafi verið rúm­lega 900 millj­ónir króna ef miðað er við gengi hluta­bréfa í flug­fé­lag­inu á þeim tíma þegar við­skiptin gengu í gegn.

Sjóð­irnir seldu jafn­framt fyrr í þessum mán­uði um 1,2 pró­senta hlut í Reg­in, en verðið var um 435 millj­ónir sé tekið mið af gengi hluta­bréfa í fast­eigna­fé­lag­inu við söl­una, og þá hafa þeir einnig minnkað nokkuð við sig í trygg­inga­fé­lög­unum á und­an­förnum mán­uð­um. Á sama tíma hafa sjóðir Eaton Vance hins vegar bætt við hlut sinn í Arion banka og fara þeir nú með ríf­lega 2,6 pró­senta hlut í bank­an­um. Til sam­an­burðar áttu sjóð­irnir um 1,2 pró­senta hlut í kjöl­far skrán­ingar bank­ans á hluta­bréfa­markað í júní sam­kvæmt Mark­að­in­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent