Fjármálaeftirlitið ákvað í morgun að stöðva tímabundið viðskipti með fjármálagerninga Icelandair Group hf. sem teknir hafa verið til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq OMX Iceland hf. Í tilkynningu frá Fjármálaeftirlitinu kemur fram að ákvörðunin var tekin til að vernda jafnræði fjárfesta.
Icelandair Group tilkynnti í gær að dótturfélag félagsins, Loftleiðir Icelandic, hefði ásamt íslenskum fjárfestum gert bindandi tilboð í 51 prósent hlut í ríkisflugfélaginu Cabo Verde Airlines á Grænhöfðaeyjum. Kaupverðið er trúnaðarmál, það verður að hluta til greitt með vinnu sem starfsmenn Loftleiða Icelandic hafa þegar innt af hendi og hið keypta mun ekki verða hluti af samstæðureikningi Icelandic Group.
Annað sinn sem viðskipti með bréf Icelandair Group eru stöðvuð
Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem viðskipti með bréf í Icelandair Group eru stöðvuð, en það gerðist einnig þegar félagið tilkynnti um kaup á WOW air fyrr í mánuðinum. Þá voru viðskiptin reyndar ekki stöðvuð strax og virði bréfa í félaginu hafði hækkað um tugi prósenta áður en stöðvunin var framkvæmd. Þannig var málum ekki háttað í morgun og lítil viðskipti höfðu átt sér stað með bréf í Icelandair Group það sem af er degi, eða fyrir 25 milljónir króna. Bréfin höfðu hækkað um 1,88 prósent