Skúli keypti sjálfur í skuldabréfaútboði WOW fyrir 770 milljónir

Eigandi og forstjóri WOW air keypti sjálfur fyrir háar fjárhæðir í skuldabréfaúboði sem félagið fór í , og lokaði um miðjan september síðastliðinn. Hann segir ýmsa aðila hafa áhuga á WOW air.

Skúli mogensen
Auglýsing

Skúli Mog­en­sen, aðal­eig­andi og for­stjóri WOW air, keypti sjálfur fyrir um 770 millj­ónir króna í skulda­bréfa­út­boði félags­ins sem lauk um miðjan sept­em­ber. Frá þessu greinir hann í bréfi til ann­arra skulda­bréfa­eig­enda sem hann sendi fyrr í dag og greint er frá í Mark­aði Frétta­blaðs­ins.

Í bréf­inu segir hann enn fremur að hann hafði verið sann­færður um að útboðið myndi duga WOW air til að halda út þar til að hægt yrði að skrá félagið á markað en að nokkrir aðilar hafi sýnt WOW air áhuga, þar á meðal Icelanda­ir.

Í Mark­aðnum segir að kröfu­hafar og stjórn­völd hafi fylgst náið með stöðu mála og kraf­ist strang­ari greiðslu­skil­mála en áður auk þess sem olíu­verð hafi náð nýjum hæðum eftir skulda­bréfa­út­boð­ið.

Auglýsing

18. sept­em­ber var til­kynnt um að skulda­bréfa­út­boð­inu hefði verið lokað og að WOW air hefði náð í allt að 60 millj­ónir evra. Ekki var greint frá því hverjir hefðu tekið þátt í skulda­bréfa­út­boð­inu að öðru leyti en að það væri bæði inn­lendir og erlendir fjár­fest­ar. Við­mæl­endur Kjarn­ans sögðu að á meðal erlendu fjár­fest­anna séu vog­un­ar­sjóðir sem átt hafa stöður á Íslandi.

Alls kyns fyr­ir­varar voru settir inn í end­an­lega skil­mála sem fólu meðal ann­ars í sér að WOW air þyrfti að stand­ast reglu­leg álags­próf sem þurftu að sýna að eigið fé félags­ins ekki lægra en 25 millj­ónir dala fyrstu tólf mán­uð­ina eftir útgáf­una og 30-35 millj­ónir dala eftir það. Auk þess kom fram að vaxta­greiðslum sem féllu til vegna skulda­bréfa­út­boðs­ins yrðu færðar á fjár­vörslu­reikn­ing.

Í byrjun nóv­em­ber var svo til­kynnt um að Icelandair ætl­aði að kaupa WOW air ef ákveðnir fyr­ir­varar yrðu upp­fyllt­ir. Upp­gefið kaup­verð á WOW air , sem átti að greiða með hlutum í Icelanda­ir, var um tveir millj­arðar króna miðað gengi Icelandair þegar til­kynnt var um kaup­in. Þau kaup virð­ast nú í upp­námi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent