Eins og „ÁTVR væri að selja grænar baunir og Cocoa Puffs“

Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir að opinber hlutafélög á borð við RÚV, Isavia og Íslandspóst hegði sér í raun eins og ríki í ríkinu.

Ólafur Stephensen í 21 28. nóvember
Auglýsing

Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, segir að ohf-væð­ing fyr­ir­tækja í eigu rík­is­ins hafi verið stór­göll­uð. 

­Fyr­ir­tæki á borð við Íslands­póst, RÚV og Isa­via hegði sér í raun eins og ríki í rík­inu. „Það er hægt að halda því fram að stjórn hluta­fé­lags sem fær engar leið­bein­ingar eigi að passa upp á að hluta­fé­lagið þrí­fist sem best. Þá vantar upp á eig­end­stefn­una, að stjórn­mála­menn setji ein­hvern ramma. Það getur bara ekki verið að ríkið eigi að setja upp fyr­ir­tæki sem keppa við allt sem hreyf­ist.“

Þetta er meðal þess sem kom fram í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­son­ar, rit­stjóra Kjarn­ans, við Ólaf í þætt­inum 21 á sjón­varps­stöð­inni Hring­braut í vik­unni. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neð­an.

Ólafur segir að það sé hægt að sjá dæmi um þessa hegðun hjá öllum opin­berum hluta­fé­lög­un­um. „Hjá Rík­is­út­varp­inu eru menn í sam­keppni við einka­fram­takið í ein­hverjum bis­ness sem kemur því sem við héldum að væri hlut­verk Rík­is­út­varps­ins ekk­ert við, eins og útleiga á stúd­íói og eitt­hvað svo­leið­is. Isa­via er á ótal sviðum í sam­keppni við einka­fram­tak­ið. Þar er reyndar for­stjóri Íslands­pósts stjórn­ar­for­mað­ur. Ríkið er orðið stærsti nær­fata- og snyrti­vöru­sali lands­ins og fyr­ir­tækið reynir að leggja steina í götu þeirra sem reyna að keppa við það til dæmis í bíla­stæða­stæða­þjón­ustu í Kefla­vík og svo fram­veg­is.“

Auglýsing
Mikil umræða hefur verið um stöðu Íslands­pósts sem hefur farið fram á 1,5 millj­arða króna lán frá rík­inu vegna rekstr­ar­vanda síns. Félag atvinnu­rek­enda hefur kraf­ist þess að fram fari óháð úttekt á starf­sem­inni. Ólafur segir til­gang hennar ekki síst þann að læra af reynsl­unni og  koma í veg fyrir að þjóðin sitji uppi með sömu stöðu vegna ann­arra ohf-a sem hafa farið offari í sam­keppn­is­rekstri og röngum ákvörð­unum þar af lút­andi.

For­stjóri Íslands­pósts, Ingi­mundur Sig­ur­páls­son, sagði í við­tali við Kast­ljósi nýver­ið, þar sem hann var spurður út í sölu fyr­ir­tæk­is­ins á gjafa­vöru og sæl­gæti. Ingi­mundur sagði að það væri þakk­lát þjón­usta fyrir þá sem þyrftu að fylla upp í pakka sem þeir ætl­uðu að senda. Ólafur segir þann mál­flutn­ing vera kostu­leg­an. „Þetta er nátt­úru­lega eins og bara að ÁTVR væri að selja grænar baunir og Cocoa Puffs á útsölu­stöðum sínum úti á land­i.“

Hægt er að horfa á við­talið við Ólaf í heild sinni hér að neð­an: 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent