Stjórnvöld ekki lagt neitt handfast fram til að leysa húsnæðisvandann

Í ályktun ASÍ kemur fram að það hafi verið ljóst árum saman að gera þurfi þjóðarátak í húsnæðismálum. Fjöldi fólks sé fast í viðjum okurleigu, húsnæðisóöryggis, það geti ekki keypt og margir búi í við óviðunandi aðstæður.

Hús
Auglýsing

Stjórn­völd hafa ekki lagt neitt hand­fast fram til lausnar þeim gríð­ar­lega vanda sem blasir við í hús­næð­is­mál­um. Þá vantar til­lögur í skatta­málum sem er þó lyk­ill­inn að kröfum um auk­inn jöfn­uð.

Þetta kemur fram í ályktun mið­stjórnar ASÍ um aðgerðir í hús­næð­is- og skatta­mál­u­m. 

Alþýðu­sam­band Íslands skorar á stjórn­völd að hraða allri vinnu er lýtur að kröfum verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar í kom­andi kjara­við­ræð­um. „Ef aðgerða- og skiln­ings­leysið sem hefur ein­kennt við­brögð stjórn­valda heldur áfram er ljóst að erfitt mun reyn­ast fyrir aðila vinnu­mark­að­ar­ins að ganga frá nýjum kjara­samn­ingi. Það er aðeins rétt rúmur mán­uður þangað til kjara­samn­ingar renna út,“ segir í álykt­un­inn­i. 

Auglýsing

Í henni segir enn fremur það hafa verið ljóst árum saman að gera þurfi þjóð­ar­á­tak í hús­næð­is­mál­um. Fjöldi fólks sé fast í viðjum okur­leigu, hús­næðisó­ör­ygg­is, það geti ekki keypt og margir búi í við óvið­un­andi aðstæð­ur. Þessi staða sé meðal ann­ars til­komin vegna aðgerð­ar­leysis stjórn­valda og sveita­stjórna. Og hafi verka­lýðs­hreyf­ingin þó í langan tíma bent á vand­ann. 

„Það er orðið sjálf­stætt úrlausn­ar­efni að laga hús­næð­is­mark­að­inn, enda liggur fyrir að þær kjara­bætur sem samið hefur verið um síð­ustu ár hafa brunnið upp á báli hús­næð­is­kostn­að­ar. Það þarf rót­tækar breyt­ingar á kerf­inu þannig að hags­munir launa­fólks og heim­ila verði teknir fram yfir hags­muni fjár­magns­eig­enda.  Breyt­ing á skatt­kerf­inu er mik­il­vægur áfangi á þeirri veg­ferð að vinda ofan af þeirri stóru skatta­til­færslu sem orðið hefur síð­ustu ár þar sem lág­launa­hópar hafa verið látnir borga reikn­ing­inn fyrir rík­asta hluta þjóð­ar­inn­ar. Hér þarf breytta for­gangs­röð. Það er kom­inn tími til að hags­munir lág-og milli­tekju­fólks verði hafðir að leið­ar­ljósi með breyt­ingum á skatt­kerf­inu og hækkun á barna-og vaxta­bóta­kerf­in­u,“ segir í yfir­lýs­ing­unn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent