Gengi hlutabréfa í Icelandair lækkaði skarpt, annan viðskiptadaginn í röð, í dag. Á föstudaginn féll gengi bréfa félagsins skarpt, og í dag féll markaðsvirðið um 9,1 prósent í dag.
Fjárfestar virðast reikna með að fjárfesting Indigo Partners, bandarísks fjárfestingafélags í flugiðnaði, muni ganga eftir, en áreiðanleikakönnun á forsendur fjárfestingarinnar er nú í gangi, samkvæmt tilkynningu um viðskiptin.
Miklar vonir eru bundnar við að fjárfestingin gangi eftir, enda mikið í húfi fyrir íslenskt efnahagslíf, þar sem WOW air hefur gengt lykilhlutverki í ferðaþjónustunni undanfarin ár og flutt mörg hundruð þúsund erlenda ferðamenn til landsins á ári hverju.
WOW air tapaði 33,6 milljónum dala, sem jafngildir um 4,2 milljarði króna, á fyrstu níu mánuðum ársins. Á sama tímabili í fyrra nam tap félagsins 13,5 milljónum dala, jafnvirði tæplega 1,7 milljarða króna miðað við núverandi gengi. Þetta kemur fram í nýbirtu uppgjöri flugfélagsins.
Tekjur WOW air námu 501,4 milljónum dala, um 61,5 milljörðum króna, á fyrstu níu mánuðum ársins og jukust um 31 prósent frá sama tímabili í fyrra þegar þær voru 371,8 milljónir dala.
EBITDA félagsins fór úr því að vera jákvæð um 8,8 milljónir dollara fyrstu níu mánuði síðasta árs í að vera neikvæð um 18,9 milljónir nú, um 2,3 milljarða íslenskra króna.
Í tilkynningu segir hinn 81 árs gamli milljarðamæringur Bill Franke, einn eiganda Indigo (Managing Partner), að Skúli Mogensen, eigandi og forstjóri WOW air, hafi náð miklum árangri við að byggja upp WOW air og að hann hlakki til samstarfs við starfsfólk félagsins.
Indigo er hluthafi í nokkrum flugfélögum, meðal annars lággjaldafélaginu Wizz Air, sem hefur flogið milli Íslands og Evrópu undanfarin misseri, og hefur starfsemi félagsins verið vaxandi á Íslandi.