Icelandair hríðféll annan viðskiptadaginn í röð

Hlutabréfaverð hækkaði nokkuð í dag. En blikur eru enn á loft í flugiðnaðinum. Fjárfestar virðast reikna með að WOW air verið bjargað.

Icelandair vél feb 2008
Auglýsing

Gengi hluta­bréfa í Icelandair lækk­aði skarpt, annan við­skipta­dag­inn í röð, í dag. Á föstu­dag­inn féll gengi bréfa félags­ins skarpt, og í dag féll mark­aðsvirðið um 9,1 pró­sent í dag. 

Fjár­festar virð­ast reikna með að fjár­fest­ing Indigo Partners, banda­rísks fjár­fest­inga­fé­lags í flug­iðn­aði, muni ganga eft­ir, en áreið­an­leika­könnun á for­sendur fjár­fest­ing­ar­innar er nú í gangi, sam­kvæmt til­kynn­ingu um við­skipt­in. 

Miklar vonir eru bundnar við að fjár­fest­ingin gangi eft­ir, enda mikið í húfi fyrir íslenskt efna­hags­líf, þar sem WOW air hefur gengt lyk­il­hlut­verki í ferða­þjón­ust­unni und­an­farin ár og flutt mörg hund­ruð þús­und erlenda ferða­menn til lands­ins á ári hverju.

Auglýsing

WOW a­ir tap­aði 33,6 millj­­ónum dala, sem jafn­­­gildir um 4,2 millj­­arði króna, á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Á sama tíma­bili í fyrra nam tap félags­­ins 13,5 millj­­ónum dala, jafn­­virði tæp­­lega 1,7 millj­­arða króna miðað við núver­andi gengi. Þetta kemur fram í nýbirtu upp­­­gjöri flug­­fé­lags­ins.

Tekj­­ur WOW a­ir ­­námu 501,4 millj­­ónum dala, um 61,5 millj­­örðum króna, á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og juk­ust um 31 pró­­sent frá sama tíma­bili í fyrra þegar þær voru 371,8 millj­­ónir dala.

EBITDA félags­­ins fór úr því að vera jákvæð um 8,8 millj­­ónir doll­­ara fyrstu níu mán­uði síð­­asta árs í að vera nei­­kvæð um 18,9 millj­­ónir nú, um 2,3 millj­­arða íslenskra króna.

Í til­­kynn­ingu segir hinn 81 árs gamli millj­arða­mær­ingur Bill Franke, einn eig­anda Indigo (Manag­ing Partner), að Skúli Mog­en­­sen, eig­andi og for­­stjóri WOW air, hafi náð miklum árangri við að byggja upp WOW air og að hann hlakki til sam­­starfs við starfs­­fólk félags­­ins.

Indigo er hlut­hafi í nokkrum flug­fé­lög­um, meðal ann­ars lággjalda­fé­lag­inu Wizz Air, sem hefur flogið milli Íslands og Evr­ópu und­an­farin miss­eri, og hefur starf­semi félags­ins verið vax­andi á Ísland­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent