Katrín: Rangt að ég hafi verið upplýst um skipan Geirs H. Haarde

Forsætisráðherra segir það rangt að hún hafi verið upplýst um skipan Geirs H. Haarde fyrirfram. Hún segir að Gunnar Bragi Sveinsson hafi hins vegar upplýst um skipan Árna Þórs Sigurðssonar sem sendiherra.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Auglýsing

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir það rangt að hún hafi verið upp­lýst um skipan Geirs H. Haarde fyr­ir­fram. Hún segir að Gunnar Bragi Sveins­son hafi hins vegar upp­lýst um skipan Árna Þórs Sig­urðs­sonar sem sendi­herra en að hann hafi ekk­ert minnst á Geir í því sam­hengi. Þetta kemur fram á Face­book-­síðu hennar í dag. 

Vísar hún með þessum orðum í hljóð­upp­töku af drykkju­fundi sex þing­manna Flokks fólks­ins og Mið­flokks­ins þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

„Gunnar Bragi hafði þá þegar tekið ákvörðun um skipan Árna Þórs en hann var þá þing­maður Vinstri-grænna. Ég kom ekki að þeirri ákvörðun og sótt­ist ekki eftir þessu starfi fyrir hönd Árna Þórs Sig­urðs­son­ar. Ég taldi að ákvörðun þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra að upp­lýsa mig um ákvörðun sína hefði fyrst og fremst verið almenn kurt­eisi og mér til upp­lýs­ingar vegna stöðu Árna Þórs sem starf­andi þing­manns í þing­flokki Vinstri grænna. Skipan þess­ara sendi­herra var á ábyrgð utan­rík­is­ráð­herra eins og lög gera ráð fyr­ir,“ segir hún. 

Auglýsing

„Í þessum sam­ræðum sagð­ist Gunnar Bragi Sveins­son líka hafa átt við­skipti með sendi­herra­stöður í tengslum við sendi­herra­skipan Árna Þórs Sig­urðs­sonar og Geirs H. Haarde árið 2014 þegar hann gegndi emb­ætti utan­rík­is­ráð­herra. Þar dró hann mitt nafn inn í þá umfjöll­un. Rétt er að halda því til haga að Gunnar Bragi hefur lýst því yfir í kjöl­farið að þarna hafi ekki verið rétt greint frá máls­at­vikum en þeirri spurn­ingu hefur verið hreyft á opin­berum vett­vangi hver mín aðkoma og afstaða hafi verið til þessa máls.

Þó að eðli sam­tals­ins á Klaust­ur­barnum hafi verið þannig að ég bygg­ist ekki endi­lega við að þurfa að svara fyrir nokkuð af því sem þar kom fram er svarið ein­falt. Það var rangt með farið hjá Gunn­ari Braga Sveins­syni á Klaust­ur­barnum að ég hafi ekki gagn­rýnt skipan Geirs H. Haarde þar sem ég gerði það á sínum tíma opin­ber­lega eins og auð­velt er að finna með ein­faldri leit á net­inu. Ég taldi sér­stakt að hann hefði verið skip­aður sendi­herra á vegum íslenskra stjórn­valda sem hann átti þá í mála­ferlum við. Aðrir þing­menn og full­trúar Vinstri-grænna tjáðu sig reyndar líka um þessi mál,“ segir hún í færslu sinn­i. 

Um fátt hefur verið meira rætt að und­an­förnu en sam­tal nokk­urra þing­manna á Klaust­ur­barnum þann 20. nóv­em­ber...

Posted by Katrín Jak­obs­dóttir on Monday, Decem­ber 3, 2018


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent