Ásmundur hefur fengið tæpar 23,5 milljónir í aksturskostnað á eigin bíl

Frá árinu 2013 hefur þingmaður Sjálfstæðisflokksins fengið tæpar 23,5 milljónir endurgreiddar vegna aksturskostnaðar á eigin bifreið. Hæstu endurgreiðslurnar fékk hann árið 2014.

Ásmundur Friðriksson.
Ásmundur Friðriksson.
Auglýsing

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur fengið 23.447.944 krónur end­ur­greiddar vegna akst­urs­kostnað frá árinu 2013. Þetta kemur fram á vef Alþingis en laun og kostn­að­ar­greiðslur þing­manna voru birtar í gær. 

Mest keyrði Ásmundur árið 2014 en þá fékk hann tæpar 5,4 millj­ónir end­ur­greiddar vegna akst­urs­kostn­aðar á eigin bif­reið. Árið 2015 fór hann einnig yfir 5 millj­óna króna markið en þá fékk hann rétt rúm­lega 5 millj­ónir end­ur­greidd­ar. Árið 2016 fékk hann tæpar 4,9 millj­ónir fyrir akst­urs­kostnað á eigin bif­reið. Lægstu greiðsl­urnar vegna ferða­kostn­aðar á eigin bif­reið fékk hann árið 2013 fyrir tíma­bilið 2013 til 2017 en þá fékk hann tæpar 3,2 millj­ónir end­ur­greidd­ar. 

Á þessu ári hafa end­ur­greiðslur Ásmundar minnkað til muna en það sem af er ári eru þær rúmar 680 þús­und krónur fyrir ferðir á eigin bif­reið og rúmar 820 þús­und fyrir ferðir með bíla­leigu­bíl, eða sam­tals 1,5 millj­ón­ir. 

Auglýsing

Mikið var fjallað um akstur Ásmundar í byrjun árs en þann 9. febr­úar síð­ast­lið­inn var upp­lýst um að hann væri sá þing­­maður sem fékk 4,6 millj­­ónir króna end­­ur­greiddar vegna akst­­­ur­s­­­kostn­aðar í fyrra. Það þýðir að hann fékk um 385 þús­und krónur á mán­uði í end­­­ur­greiðslu úr rík­­­is­­­sjóði vegna keyrslu sinn­­ar á síð­asta ári. Alls keyrði Ásmundur 47.644 kíló­­metra í fyrra og fékk end­­ur­greitt frá rík­­inu vegna kostn­aðar fyrir þann akst­­ur. 

Ásmundur sagði í Morg­un­út­­varpi Rásar 2 þegar fjallað var um málið á sínum tíma að hann keyrði 20 til 25 þús­und kíló­­metra á ári til að fara í vinnu. Hann sinni auk þess kjör­­dæmi sínu, sem sé 700 kíló­­metra langt, afar vel. „Það líða ekki margar helgar sem ég hef frí frá því að sinna erindum í kjör­­dæm­in­u, fara út á meðal fólks, mæta á alls­­konar upp­­á­komur og svo eru sumrin upp­­­tekin af alls­­konar bæj­­­ar­há­­tíð­u­m,“ sagði hann.

Hann sagð­ist í sama við­tali fara eitt hund­rað pró­­sent eftir öllum reglum og að hann hefði aldrei fengið athuga­­semd frá þing­inu. Hann hefði haldið nákvæma dag­­bók þar sem finna megi yfir­­lit yfir það sem hann hefur gert í hverri ferð fyrir sig og hvern hann hefði hitt. Tíðar kosn­­ingar á und­an­­förnum árum hefði auk þess kallað á aukin ferða­lög. „Regl­­urnar eru bara þannig að þau erindi sem ég á við kjós­­endur sem þing­­maður það er greitt.“ 

Í lok nóv­em­ber síð­ast­lið­ins end­ur­greiddi Ásmundur skrif­­stofu Alþingis 178 þús­und krónur vegna ferða sem honum hafði verið end­­ur­greiddar á síð­­asta ári. Þetta gerði hann vegna þess að honum hafi orðið það ljóst „að það gæti orkað tví­­­mælis að blanda saman ferðum mínum um kjör­­dæmið og ferðum á sama tíma með töku­­fólki ÍNN.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent