Bláa lónið verðlagt á 50 milljarða króna

Eignarhaldsfélagið Kólfur gerði nýlega samkomulag við framtakssjóðinn Horn II um kaup á 20 prósenta óbeinum hlut sjóðs í meirihlutaeigu lífeyrissjóða í Bláa lóninu. Í því samkomulagi er Bláa lónið metið á 50 milljarða króna.

Bláa lónið
Auglýsing

Bláa lónið er verð­metið á um 50 millj­arða króna í því sam­komu­lagi sem eign­ar­halds­fé­lagið Kólf­ur, sem er í meiri­hluta­eigu Gríms Sæmund­sen, for­stjóra Bláa lóns­ins, gerði nýlega við fram­taks­sjóð­inn Horn II um kaup á 49,45 pró­senta hlut sjóðs­ins í Hvatn­ingu. Hvatn­ing heldur 39,1 pró­sents hlut í Bláa lón­inu og er því óbeinn eign­ar­hlutur sjóðs­ins rúm­lega 19,3 pró­sent. Frá þessu er greint í Mark­að­inum, fylgi­riti um við­skipti og efna­hags­mál.

Tals­vert hærra verð­mat en þegar Black­stone gerðu til­boð 

Miðað við kauptil­boð Kólfs er Bláa lónið metið á tals­vert hærra verði en þegar banda­ríska fjár­fest­inga­fé­lagið Blac­stone ætl­aði að kaupa 30 pró­sent hlut í lón­inu af HS Orku sum­arið 2017.  Til­boð Black­stone hljóð­aði þá upp á 95 millj­ónir evra, jafn­virði 13,3 millj­arða króna á núver­andi gengi, sem jafn­gildir því að mark­aðsvirði Bláa lóns­ins sé rúm­lega 44 millj­arðar króna. 

Ekk­ert varð hins vegar af söl­unni eftir að stjórn Jarð­varma, sam­lags­hluta­fé­lags í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða sem fer með þriðj­ungs­hlut í HS Orku, ákvað að beita neit­un­ar­valdi sínu, á grund­velli hlut­hafa­sam­komu­lags um minni­hluta­vernd, og hafna til­boði Black­sto­ne.

Auglýsing

Her­mann Þór­is­son, fram­kvæmda­stjóri Horns II, sem er í rekstri Lands­bréfa, sagð­ist í sam­tali við Mark­að­inn ekk­ert geta tjáð sig um kaup­verðið og vís­aði til trún­að­ar.

Horn II mun renna sitt skeið á næsta ári

Stærstu hlut­hafar Horns II, sem eru einkum íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir, hafa kaup­rétt á sama gengi sem undir var í við­skipt­unum til loka jan­ú­ar. Sam­kvæmt heim­ildum Mark­að­ar­ins hefur mik­ill meiri­hluti hlut­hafa Horn­s I­I í hyggju að nýta sér kaup­rétt­inn og þannig vera áfram ó­beinir hlut­hafar í Bláa lón­inu. Það á hins vegar ekki við um Lands­bank­ann sem er þriðji stærsti hlut­hafi Horns II . Grímur Sæmunds­son mun á næst­unni halda fjár­festa­kynn­ingar á Bláa lón­inu fyrir hlut­hafa Horns II sam­kvæmt heim­ildum Mark­að­ar­ins

Grímur Sæmundsen, bláa lónið, forstjóri, SAFÍ árs­­reikn­ingi Horn­s I­I ­fyrir 2017 var hlutur sjóðs­ins í Hvatn­ingu met­inn á ríf­lega 8 millj­arða króna en miðað við núver­andi kauptil­boð Kólfs þá er virði hlut­ar­ins í kringum 9,5 millj­arða króna. Í umfjöllun Mark­að­ar­ins segir að til­urð við­skipt­anna má rekja til þess að líf­tími Horns II, sem stofn­aður var 2013, muni renna sitt skeið á næsta ári. Stærstu hlut­hafar sjóðs­ins eru Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna og Gildi líf­eyr­is­sjóð­ur, hvor um sig með 18,17 pró­senta eign­ar­hlut. Aðrir stórir hlut­hafar eru meðal ann­ars Lands­bank­inn með 7,66 pró­senta hlut, Söfn­un­ar­sjóður líf­eyr­is­rétt­inda með 5,85 pró­sent og þá nemur eign­ar­hlutur trygg­inga­fé­lags­ins VÍS 5,38 pró­sent­um.

Hagn­aður Bláa lóns­ins í fyrra var 31 milljón evra 

Bláa lónið hefur vaxið hratt á und­an­förnum árum. Í fyrra nam hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins, eftir skatta, 31 milljón evra og hækk­aði um þriðj­ung á milli ára. Tekjur fyr­ir­tæk­is­ins námu rúm­lega 102 millj­ónum evra, jafn­virði 14 millj­arða króna, á síð­asta ári og juk­ust um 25 millj­ónir evra á milli ára.  EBITDA fyr­ir­tæk­is­ins jókst um lið­lega 39 pró­sent í fyrra og nam rúm­lega 39 millj­ónum evra.

Fyrir utan Hvatn­ingu og HS Orku eru helstu hlut­hafar Bláa lóns­ins eign­ar­halds­fé­lagið Keila með 9,2 pró­senta hlut en það er í meiri­hluta­eigu Hvatn­ing­ar. Aðrir hlut­hafar í Keilu eru meðal ann­ars Úlfar Stein­dórs­son, for­stjóri Toyota á Íslandi og vara­maður í stjórn Bláa lóns­ins. Þá eiga Helgi Magn­ús­son, stjórn­ar­for­maður Bláa lóns­ins, og Sig­urður Arn­gríms­son, fjár­festir og fyrr­ver­andi starfs­maður Morgan Stanley í London, einnig hvor um sig um 6,2 pró­senta hlut í fyr­ir­tæk­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent