Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir að hann hafi, ásamt Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra og formanni Sjálfstæðisflokksins, átt óformlegan fund með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, þar sem hann greindi ráðherrunum tveimur frá áhuga Gunnars Braga Sveinssonar, þingmanns Miðflokksins, á sendiherrastöðu. Guðlaugur segir að fundurinn hafi verið að frumkvæði Sigmundar Davíðs. Þetta kemur fram í stöðuuppfærslu hans á Facebook.
Guðlaugur Þór segir að það sé alvanalegt að ráðherra eða ráðherrar hitti þingmenn að máli og að það sé ekki óalgengt að ráðherra fái uppástungur og meðmæli með fólki í stöðu sendiherra.
„Um efni fundarins hef ég litlu við það að bæta sem fram er komið hjá formanni Sjálfstæðisflokksins um málið. Sem fyrrverandi utanríkisráðherra kann Gunnar Bragi að hafa haft væntingar um slíka skipun en það er í það minnsta ekki á grundvelli neinna loforða, eins og formaður Sjálfstæðisflokksins, og raunar Gunnar Bragi sjálfur, hefur staðfest. Frásagnir í alræmdu samsæti á Klaustri um einhvers konar samkomulag í þessa átt voru mér enda algjörlega framandi, eins og ég hef þegar tjáð mig um.“
Fyrir fáeinum vikum áttum við Bjarni Benediktsson óformlegan fund með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni...
Posted by Guðlaugur Þór Þórðarson on Wednesday, December 5, 2018
Bjarni Benediktsson, staðfesti við fréttir Stöðvar 2 í gærkvöldi, að Sigmundur Davíð hefði rætt um áhuga Gunnars Braga Sveinssonar, á því að fara starfa erlendis á vegum Íslands, á fundi með honum og Guðlaugi Þór.
Þessi mál komu meðal annars fram í umræðum þingmanna á Klaustur bar, 20. nóvember síðastliðinn, sem hafa dregið mikinn dilk á eftir sér. Bergþór Ólason og Gunnar Bragi Sveinsson eru farnir í leyfi sem þingmenn Miðflokksins og Karl Gauti Hjaltason og Ólafur Ísleifsson hafa verið reknir úr Flokki fólksins.
Á vef Kvennablaðsins hafa verið birt nákvæmari upplýsingar um samtal Sigmundar Davíðs af fundi hans með Bjarna og Guðlaugi Þór, en þær koma af upptökunum frá Klaustur bar.
„Sigmundur tekur við og staðfestir söguna: „af því ég veit þetta er rétt. … Bjarni má eiga það, hann viðurkenndi það, að hann hefði … við sig. Að Bjarni, þegar ég hitti hann, við sátum hérna í klukkutíma og áttum spjall. Bjarni fór út um víðan völl en niðurstaðan var sú að hann hefði fallist á það að ef þetta gengi upp þá ætti Gunnar inni hjá Sjálfstæðismönnum.“
–„Eðlilega“ segir Bergþór.
„Já. Ókei,“ heldur Sigmundur áfram. „Næsta skref var að hitta Bjarna með Gulla Þór, sem var í tygjum við Bjarna. Og við hittumst hér inni, sátum saman og … Bjarni má eiga það, að … hann fylgdi málinu eftir. Á dögunum. Við erum komnir í samskipti við menn. Gunnar Bragi bíður eftir niðurstöðu. Nú þurfum við bara að klára hérna … Guðlaugur Þór …“