Guðlaugur Þór: Sigmundur Davíð greindi frá áhuga Gunnars Braga á sendiherrastöðu

Utanríkisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins funduðu óformlega með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir nokkrum vikum. Efni fundarins, sem var haldin að frumkvæði Sigmundar, var að greina frá áhuga Gunnars Braga Sveinssonar á sendiherrastöðu.

Guðlaugur þór
Auglýsing

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra segir að hann hafi, ásamt Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, átt óform­legan fund með Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syni, for­manni Mið­flokks­ins, þar sem hann greindi ráð­herr­unum tveimur frá áhuga Gunn­ars Braga Sveins­son­ar, þing­manns Mið­flokks­ins, á sendi­herra­stöðu. Guð­laugur segir að fund­ur­inn hafi verið að frum­kvæði Sig­mundar Dav­íðs. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu hans á Face­book.

­Guð­laugur Þór segir að það sé alvana­legt að ráð­herra eða ráð­herrar hitti þing­menn að máli og að það sé ekki óal­gengt að ráð­herra fái upp­á­stungur og með­mæli með fólki í stöðu sendi­herra.

„Um efni fund­ar­ins hef ég litlu við það að bæta sem fram er komið hjá for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins um mál­ið. Sem fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra kann Gunnar Bragi að hafa haft vænt­ingar um slíka skipun en það er í það minnsta ekki á grund­velli neinna lof­orða, eins og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og raunar Gunnar Bragi sjálf­ur, hefur stað­fest. Frá­sagnir í alræmdu sam­sæti á Klaustri um ein­hvers konar sam­komu­lag í þessa átt voru mér enda algjör­lega fram­andi, eins og ég hef þegar tjáð mig um.“

Auglýsing
Guðlaugur Þór segir ástæðu til að árétta að hann hafi ekki, á þeim tæp­lega tveimur árum sem hann hef gegnt emb­ætti utan­rík­is­ráð­herra, skipað neina nýja sendi­herra við utan­rík­is­þjón­ust­una. „Það stendur ekki til af minni hálfu að gera breyt­ingu þar á í til­efni af fram­an­greindri mála­leitan for­manns Mið­flokks­ins. Má öllum hlut­að­eig­andi vera það ljóst.“

Fyrir fáeinum vikum áttum við Bjarni Bene­dikts­son óform­legan fund með Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syni, for­mann­i...

Posted by Guð­laugur Þór Þórð­ar­son on Wed­nes­day, Decem­ber 5, 2018


Bjarni Bene­dikts­­son, stað­­festi við frétt­ir Stöðvar 2 í gær­kvöldi, að Sig­­mundur Davíð hefði rætt um áhuga Gunn­­ars Braga Sveins­­son­­ar, á því að fara starfa erlendis á vegum Íslands, á fundi með honum og Guð­laugi Þór.

Þessi mál komu meðal ann­­ars fram í umræðum þing­­manna á Klaustur bar, 20. nóv­­em­ber síð­­ast­lið­inn, sem hafa dregið mik­inn dilk á eftir sér. Berg­þór Óla­­son og Gunnar Bragi Sveins­­son eru farnir í leyfi sem þing­­menn Mið­­flokks­ins og Karl Gauti Hjalta­­son og Ólafur Ísleifs­­son hafa verið reknir úr Flokki fólks­ins.

Á vef Kvenna­­blaðs­ins hafa verið birt nákvæm­­ari upp­­lýs­ingar um sam­­tal Sig­­mundar Dav­­íðs af fundi hans með Bjarna og Guð­laugi Þór, en þær koma af upp­­tök­unum frá Klaustur bar.

Auglýsing
Þar seg­ir, í end­­ur­­skrift af upp­­tök­unn­i: 

„Sig­­mundur tekur við og stað­­festir sög­una: „af því ég veit þetta er rétt. … Bjarni má eiga það, hann við­­ur­­kenndi það, að hann hefði … við sig. Að Bjarni, þegar ég hitti hann, við sátum hérna í klukku­­tíma og áttum spjall. Bjarni fór út um víðan völl en nið­­ur­­staðan var sú að hann hefði fall­ist á það að ef þetta gengi upp þá ætti Gunnar inni hjá Sjálf­­stæð­is­­mönn­­um.“

–„Eðli­­lega“ segir Berg­þór.

„Já. Ókei,“ heldur Sig­­mundur áfram. „Næsta skref var að hitta Bjarna með Gulla Þór, sem var í tygjum við Bjarna. Og við hitt­umst hér inni, sátum saman og … Bjarni má eiga það, að … hann fylgdi mál­inu eft­­ir. Á dög­un­­um. Við erum komnir í sam­­skipti við menn. Gunnar Bragi bíður eftir nið­­ur­­stöðu. Nú þurfum við bara að klára hérna … Guð­laugur Þór …“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent