Ásmundur Einar Daðason félags- og jafnréttismálaráðherra hefur skipað Frosta Sigurjónsson formann starfshóps sem útfæra á sértækar aðgerðir til að auðvelda ungu og tekjulágu fólki að kaupa sér íbúðarhúsnæði. Hópurinn er stofnaður í framhaldi af tillögu ráðherra sem samþykkt var á fundi ríkisstjórnar nýlega.
Þetta kemur fram í frétt velferðarráðuneytisins.
Í starfshópnum eiga einnig sæti fulltrúar frá Íbúðalánasjóði, fjármála- og efnahagsráðuneytinu og forsætisráðuneytinu.
Í fréttinni kemur jafnframt fram að í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segi að ráðist verði í aðgerðir til að lækka lækka þröskuld ungs fólks og tekjulágra inn á húsnæðismarkaðinn og endurskoða í því skyni stuðningskerfi hins opinbera þannig að stuðningurinn nýtist fyrst og fremst þessum hópum. Meðal annars verði skoðaðir möguleikar á því að nýta lífeyrissparnað til þessa.
„Velferðarráðuneytið í samvinnu við Íbúðalánasjóð hefur um skeið unnið að kortlagningu ýmissa úrræða sem stjórnvöld í nágrannalöndum okkar bjóða tekjulágum á húsnæðismarkaði og hafa gefið góða raun. Hafa sjónir beinst sérstaklega að tilteknum leiðum sem farnar hafa verið í Sviss og Noregi og gefist vel,“ segir í fréttinni.