Hvorki Miðflokkurinn né Flokkur fólksins næði manni inn á þing

Fylgi Miðflokksins ásamt fylgi Flokks fólksins mælist nú undir fimm prósent. Innan við helmingur þeirra sem kusu Miðflokkinn síðast myndi kjósa hann núna. Samfylkingin mælist með mesta fylgið og Sjálfstæðisflokkurinn þar rétt á eftir.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Inga Sæland.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Inga Sæland.
Auglýsing

Hvorki Mið­flokk­ur­inn né Flokkur fólks­ins næði fram­bjóð­endum sínum inn á þing sam­kvæmt nýrri könnun Mask­ínu. Fylgi beggja flokk­anna mælist nú undir fimm pró­sent­um, fylgi Mið­flokks­ins mælist 4,6 pró­sentum og fylgi Flokks fólks­ins 4,4 pró­sent. Könnun fór fram dag­ana 30. nóv­em­ber til 3. des­em­ber 2018. 

Fjórir þing­menn Mið­flokks­ins og tveir þing­menn Flokks fólks­ins tóku þátt í sam­ræðum á Klaust­ur­bar þar sem þing­menn­irnir urðu upp­vísir að því að sví­virða aðra þing­menn, einkum kon­ur, og minni­hluta­hópa á barnum Klaust­ur, þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Málið hefur verið áber­andi í fjöl­miðlum að und­an­förnu.

Sam­fylk­ingin stærst 

Sam­fylk­ingin mælist með mesta fylg­ið, eða 19,7 pró­sent. P­íratar mæl­ast með 15 pró­sent og Við­reisn með 13,4 pró­sent.

Af rík­is­stjórn­ar­flokk­unum mælist Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn með minnst eða tæp 9 pró­sent, Vinstri græn með 15 pró­sent og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn 19,3 prósent. 

Auglýsing

Innan við helm­ingur þeirra sem kaus Mið­flokk­inn í síð­ustu kosn­ingum myndi kjósa hann aftur

Maskína spurði hvaða flokk fólk myndi kjósa í dag og hvaða flokk það kaus í síð­ustu kosn­ing­um. Innan við helm­ingur þeirra sem segj­ast hafa kosið Mið­flokk­inn í síð­ustu kosn­ingum ætlar að kjósa hann aftur nú, eða tæp­lega 49 pró­sent. Rúm­lega 59 pró­sent þeirra sem kusu Flokk fólks­ins í síð­ustu kosn­ing­um ­myndu kjósa hann aftur nú. Mynd: Maskína-rannsóknir

Aðeins tæp­lega 61 pró­sent þeirra sem kusu Vinstri­hreyf­ing­una – grænt fram­boð síð­ast myndu kjósa flokk­inn aftur nú. 

Hæsta hlut­fall þeirra kjó­senda sem myndu kjósa sama flokk­inn aftur eru kjós­endur Við­reisnar eða rúm­lega 92 pró­sent. Hátt hlut­fall kjós­enda Framsókn­ar­flokks, Sam­fylk­ing­ar, Pírata og Sjálf­stæð­is­flokks­ins ­myndu kjósa þá aftur eða um 82 til 85 pró­sent kjó­senda.

Fyrr­ver­andi kjós­endur Flokks fólks­ins myndu helst kjósa Pírata

Sam­kvæmt könnun Mask­ínu eru þeir kjó­sendur sem ekki ætla kjósa sama flokk og síð­ast frekar ráð­villt­ir en 19 til 25 pró­sent þeirra segj­ast ekki vita hvaða flokk þeir myndu kjósa nú. En af þeim sem vita hvað þeir ætla kjósa í stað­inn þá ætla fyrr­ver­andi kjós­endur Flokks fólks­ins helst að kjósa Pírata, tæp 15 pró­sent, síðan Við­reisn, 11 pró­sent eða Fram­sókn­ar­flokk­inn 7,4 pró­sent. 

Fyrr­ver­andi kjós­endur Mið­flokks­ins myndu helst kjósa Flokk fólks­ins eða Fram­sókn­ar­flokk­inn, bæði 16, 3 pró­sent. Síðan myndu 11,6 pró­sent kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Fyrr­ver­andi kjó­sendur Vinstri grænna hyggjast, að langstærstum hluta, kjósa Sam­fylk­ing­una eða 21, 5 pró­sent en rúm­lega 10 pró­sent myndu kjósa Pírata.  

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent