Drífa Snædal forseti Alþýðusambands Íslands segir að hegðun þingmannanna sex á Klausturbar hafi haft áhrif á trúverðugleika Íslendinga sem boðbera jafnréttis á alþjóðavettvangi. Hún segir að Íslendingar verði að hætta að láta eins og þeir séu með þetta og í staðinn taka til í eigin ranni.
„Hegðun nokkurra þingmanna hefur því haft áhrif á trúverðugleika okkar sem boðberar jafnréttis á alþjóðavettvangi. Það er sárt og óþolandi þó ég hafi aldrei verið sannfærð um að við værum sú jafnréttisþjóð sem við gefum okkur út fyrir að vera á tyllidögum! Hættum að láta eins og við séum með þetta og tökum til í eigin ranni, einungis þannig getum við farið í trúboð um heiminn,“ segir Drífa Snædal í vikulegum pistli á vef ASÍ.
Við megum aldrei sætta okkur við niðurlægjandi tal um minnihlutahópa
Drífa er stödd á fjórða þingi Alþjóðasambands verkalýðsfélaga (ITUC) í Kaupmannahöfn. Hún var kjörinn varamaður í stjórn ITUC í gær og sat í framhaldinu á stjórnarfundi sambandsins. Hún segir að fylgst hafa verið vel með fréttum að heiman í Kaupmannahöfn og að í kjölfarið hafi hún fengið fjölda spurninga um „enn eitt hneykslið í íslenskum stjórnmálum“ sem ratað hefur í heimsfréttirnar.
Hún leggur áherslu á að þegar hatursorðræða líðist þá gefi það leyfi til mismunar í launum, stigveldi og elur á beinu ofbeldi. „Við megum aldrei sætta okkur við niðurlægjandi tal um minnihlutahópa, slíkt er ofbeldi í sjálfu sér. Þegar hatursfull orðræða líðst gefur það leyfi til mismununar í launum, stigveldi og elur á beinu ofbeldi.“