Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir í yfirlýsingu til fjölmiðla að hann hafi ekki ætlað að rengja frásögn Báru Huldu Beck né draga úr sínum hlut. „Misræmið sem hún rekur í svari sínu byggir á ólíkri upplifun.,“ segir Ágúst. Hann kveðst hafa lagt mikla áherslu á það í samtölum þeirra og framburði sínum hjá trúnaðarnefndinni að gangast við sinni hegðun. „Hennar upplifun er auðvitað aðalatriðið í þessu máli.“
Ágúst Ólafur segist í dag vera að leita sér faglegrar aðstoðar vegna hegðunar sinnar og róta hennar. „Ég bið Báru Huld enn og aftur innilegrar afsökunar á framkomu minni og þeirri vanlíðan sem ég hef valdið henni.“
Bára Huld Beck birti í dag svar við yfirlýsingu Ágústs hér á Kjarnanum.
Yfirlýsing Ágústs Ólafs í heild sinni:
Ætlun mín var aldrei sú að rengja hennar frásögn eða draga úr mínum hlut. Misræmið sem hún rekur í svari sínu byggir á ólíkri upplifun. Ég lagði mikla áherslu á í okkar samtölum og í framburði mínum hjá trúnaðarnefndinni að gangast við minni hegðun. Hennar upplifun er auðvitað aðalatriðið í þessu máli.
Ég er í dag að leita mér faglegrar aðstoðar vegna hegðunar minnar og róta hennar. Ég bið Báru Huld enn og aftur innilegrar afsökunar á framkomu minni og þeirri vanlíðan sem ég hef valdið henni.
Ágúst Ólafur Ágústsson