Funda um sendiherramálið í janúar

Samkvæmt formanni stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar mun nefndin funda um hið svokallaða sendiherramál í janúar. Ekki var hægt að fjalla um málið í nefndinni í dag þar sem Gunnar Bragi Sveinsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson mættu ekki.

Alþingishúsið
Auglýsing

Stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd mun funda um sendi­herra­málið svo­kall­aða í jan­ú­ar. Þetta segir Helga Vala Helga­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og for­maður nefnd­ar­inn­ar, í sam­tali við Kjarn­ann. 

Í frétt RÚV um málið mun nefndin ekki funda í dag vegna þess að þeir Gunnar Bragi Sveins­son og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hafa ekki svarað ítrek­uðum boðum um að mæta til fund­ar­ins.

Á fund­inn var einnig búið að boða Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Guð­laug Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra. Guð­laugur Þór er erlendis í dag, sam­kvæmt RÚV, og hefði því ekki kom­ist á fund nefnd­ar­inn­ar.

Auglýsing

Gunnar Bragi og Sig­mundur Dav­íð, sem báðir eru þing­menn Mið­flokks­ins, sátu á Klaust­ur­barnum í lok nóv­em­ber þar sem gerð var upp­taka af sam­tali þeirra og fjög­urra ann­arra þing­manna. G­unnar Bragi heyr­ist á upp­tök­unni ræða hrossa­kaup um skipan Árna Þórs Sig­urðs­son­ar, fyrr­ver­andi þing­manns Vinstri grænna,  og Geirs H. Haar­de, fyrr­ver­andi for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem sendi­herra. 

Á meðal þess sem Gunnar Bragi segir er: „Þegar ég ákvað það að skipa Geir H. Haarde sendi­herra í Was­hington […] þá ræddi ég við Sig­urð Inga. Honum var ekki skemmt enda hafði hann ákært Geir. Ég ræddi þetta auð­vitað við alla flokka. Ég sá það að ég gæti ekki skipað Geir einn. Það yrði of þungur biti fyrir þingið og alla. Það sem ég gerði var að skipa Árna Þór (Sig­urðs­son) sem sendi­herra.  Hann er nátt­úru­lega bara […], þó hann sé frændi minn. VG hefðu getað orðið brjál­aðir en Katrín sagði ekki orð. Ég átti fund með henni. Geir slapp í gegnum þetta eins og smjör á smokknum hjá honum þarna Frið­riki Ómari.“

Síðar bætti Gunnar Bragi við: „At­hyglin fór öll á Árna Þór. Ann­ars hefði Vinstri Græna liðið orðið brjál­að[...]Árni var nátt­úru­lega ekk­ert annað en sendi­tík Stein­gríms. Plottið mitt var að Geir yrði í skjól­inu hjá Árna og það virk­aði ekki bara 100 pró­sent heldur 170 pró­sent því að Árni fékk allan skít­inn. Svo sagði Geir við mig löngu seinna: „Þakka þér fyr­ir. Það var eng­inn sem gagn­rýndi mig.“ Ég lét Árna taka allan slag­inn.[...]Ég átti fund með Bjarna í fjár­mála­ráðu­neyt­inu. Ég sagði við Bjarna: „Það er algjör­lega sjálf­sagt. Auð­vitað geri ég Geir að sendi­herra.“ Og ég sagði við hann: „Og mér finnst sann­gjarnt að þið horfið til svip­aðra hluta þegar ég þarf á því að halda.“ Það var ekki vegna þess að ég hafi verið að hugsa um að skipta um flokk. Ég var ekki kom­inn út þegar Þórólfur (Gísla­son) hringir og spyr: „Ætlar þú að verða sendi­herra?“ Ég var ekki kom­inn út úr ráðu­neyt­in­u.“

Í frétt RÚV segir að á upp­tök­unum heyr­ist Sig­mundur Davíð stað­festa þessa frá­sögn Gunn­ars Braga. Eftir að upp­tök­urnar voru gerðar opin­berar hafi þeir þver­tekið fyrir að sagan um lof­orðið hafi verið sönn. Bjarni Bene­dikts­son hafi jafn­framt neitað því að hafa veitt slíkt lof­orð og Guð­laugur Þór seg­ist ekki vita til þess að til stæði að gera Gunnar Braga að sendi­herra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent