Í yfirlýsingu sem birst hefur á Facebook-síðu Miðflokksins kemur fram að formaður og varaformaður flokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Gunnar Bragi Sveinsson, hafi ekki haft neina skyldu til að mæta á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í morgun. „Það er afar fátítt að þingnefndir séu notaðar í jafn augljósum pólitískum tilgangi og átti að gera. Slíkt á ekki að viðgangast,“ segir í yfirlýsingunni.
Mennirnir tveir höfðu verið boðaðir á fund nefndarinnar til að ræða tal þeirra á Klausturbar þann 20. nóvember um meint pólitísk hrossakaup við skipun sendiherra. Í þeim hrossakaupum fólks, samkvæmt tali mannanna, að Gunnar Bragi ætti inni greiða hjá Sjálfstæðisflokknum fyrir að skipa Geir H. Haarde, fyrrverandi formann flokksins, sem sendiherra í Washington. Þann greiða ætti hann að gera innkallað með því að fá sjálfur úthlutað sendiherratign. Fyrir liggur að Sigmundur Davíð fór á fund Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, og Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra til að ræða möguleikann á því að Gunnar Bragi yrði skipaður sendiherra. Allir mennirnir fjórir áttu að koma fyrir opin fund í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í morgun en ekkert varð af fundinum þar sem hvorki Sigmundur Davíð né Gunnar Bragi svöruðu boðunum á fundinn. Í yfirlýsingunni segir: „Varðandi þær fullyrðingar sem komið hafa fram í fjölmiðlum um að ekki hafi verið hægt að ná í formann okkar er sannleikurinn sá að alltaf er hægt að ná í Sigmund Davíð af starfsmönnum Alþingis eða koma boðum til hans. Svar við fundarboði var tilbúið en kl 17.00 var fundurinn afboðaður. Engin tímamörk voru höfð í fundarboði. Það var vitað að hvert svo sem svarið hefði orðið hefði það lekið í fjölmiðla nær samstundis.“
Fundurinn verður þess í stað haldin í janúar.
Í yfirlýsingu Miðflokksins er einnig fjallað um þá ákvörðun fjögurra þingmanna flokksins um að láta Báru Halldórsdóttur, sem tók tal þeirra upp, mæta fyrir dóm til skýrslutöku. Þar segir að slík skýrslutaka „yfir manneskju sem gerðist sek um eða tók á sig sök um hlerun er einungis einn liður í nauðsynlegri gagnaöflun. Við reiknum fastlega með því að ýmislegt eigi eftir að koma fram. Rétt einstaklinga til friðhelgi ber alltaf að virða og er það okkar helsti útgangspunktur. Ekki er búið að ákæra neinn og ekki að fara fram á bætur frá neinum.“
Vegna umræðu í fjölmiðlum er rétt að taka eftirfarandi fram. Skýrslutaka yfir manneskju sem gerðist sek um eða tók á sig...
Posted by Miðflokkurinn on Wednesday, December 12, 2018