Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hefur pantað sér gult vesti sem vísar til mótmælanna í Frakklandi. Frá þessu greinir hann í stöðuuppfærslu á facebook-síðu sinni í dag.
Mótmæli „gulu vestanna“ hófust fyrir fjórum vikum í París en þá flykktist fólk út á götur til að mótmæla hækkunum á eldsneytissköttum. Upphaf þeirra má rekja til hækkun skatta á eldsneyti en mótmælin hafa breyst í almenn mótmæli gegn forseta Frakklands, Emmanuel Macron.
„Kjörnir fulltrúar stunda hrossakaup á börum bæjarins, eru uppvísir af ósæmilegri hegðun, jafnvel kynferðislegri áreitni. Stjórnvöld lækka veiðigjöld og hækka framlög til stjórnmálaflokka. Þjóðarsjóður skal stofnaður fyrir einhverja dekurkálfa að gambla með. Kjararáð hækkar kjör þeirra um tæplega helming um leið og ekkert svigrúm er til kerfisbreytinga eða kjarabóta fyrir þjóðina. Skýrsla um hvítþvott fjármálakerfisins segir okkur að vanda betur valið á þeim sem fá bankana í hendurnar næst. Uppbygging innviða verða svo fjármagnaðir með gjaldtöku,“ segir Ragnar í færslunni.
Hann bætir því við að ekkert sé að marka kosningaloforðin eins og venjulega því stjórnmálamenn virðist eingöngu hafa hugsjónir og drifkraft í að breyta á 4 ára fresti, og þá aðeins í nokkra daga. Í millitíðinni séu þau kyrfilega læst í neðstu skúffu ríkisstjórnarinnar með stórum bunka spillingarmála, panamaskjala og nýju stjórnarskráni.
Ragnar spyr í lok færslunnar hvort hann eigi að panta fleiri vesti.
Kjörnir fulltrúar stunda hrossakaup á börum bæjarins, eru uppvísir af ósæmilegri hegðun, jafnvel kynferðislegri áreitni....
Posted by Ragnar Þór Ingólfsson on Friday, December 14, 2018