Ragnar Þór pantar sér gult vesti

Formaður VR segir að ekkert sé að marka kosningaloforð stjórnmálamanna því þeir virðist eingöngu hafa hugsjónir og drifkraft í að breyta á fjögurra ára fresti, og þá aðeins í nokkra daga.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Auglýsing

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, hefur pantað sér gult vesti sem vísar til mót­mæl­anna í Frakk­landi. Frá þessu greinir hann í stöðu­upp­færslu á face­book-­síðu sinni í dag. 

Mót­­mæli „gulu vest­anna“ hóf­ust fyr­ir fjórum vik­um í Par­ís en þá flykkt­ist fólk út á göt­ur til að mót­­mæla hækk­­un­um á elds­neyt­is­skött­­um. Upp­­haf þeirra má rekja til hækk­­un skatta á elds­neyti en mót­­mæl­in hafa breyst í al­­menn mót­­mæli gegn for­­seta Frakk­lands, Emm­­an­u­el Macron.

„Kjörnir full­trúar stunda hrossa­kaup á börum bæj­ar­ins, eru upp­vísir af ósæmi­legri hegð­un, jafn­vel kyn­ferð­is­legri áreitni. Stjórn­völd lækka veiði­gjöld og hækka fram­lög til stjórn­mála­flokka. Þjóð­ar­sjóður skal stofn­aður fyrir ein­hverja dek­ur­kálfa að gambla með. Kjara­ráð hækkar kjör þeirra um tæp­lega helm­ing um leið og ekk­ert svig­rúm er til kerf­is­breyt­inga eða kjara­bóta fyrir þjóð­ina. Skýrsla um hvít­þvott fjár­mála­kerf­is­ins segir okkur að vanda betur valið á þeim sem fá bank­ana í hend­urnar næst. Upp­bygg­ing inn­viða verða svo fjár­magn­aðir með gjald­töku,“ segir Ragnar í færsl­unn­i. 

Auglýsing

Hann bætir því við að ekk­ert sé að marka kosn­inga­lof­orðin eins og venju­lega því stjórn­mála­menn virð­ist ein­göngu hafa hug­sjónir og drif­kraft í að breyta á 4 ára fresti, og þá aðeins í nokkra daga. Í milli­tíð­inni séu þau kyrfi­lega læst í neðstu skúffu rík­is­stjórn­ar­innar með stórum bunka spill­ing­ar­mála, panama­skjala og nýju stjórn­ar­skráni.

Ragnar spyr í lok færsl­unnar hvort hann eigi að panta fleiri vesti.

Kjörnir full­trúar stunda hrossa­kaup á börum bæj­ar­ins, eru upp­vísir af ósæmi­legri hegð­un, jafn­vel kyn­ferð­is­legri áreitn­i....

Posted by Ragnar Þór Ing­ólfs­son on Fri­day, Decem­ber 14, 2018


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent