Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, hefur undirritað reglugerð um hækkun á greiðslum til foreldra í fæðingarorlofi frá 1. janúar 2019. Óskertar greiðslur hækka um 80.000 krónur, úr 520.000 krónur í 600.000 krónur á mánuði. Í tilkynningu frá Velferðarráðuneytinu segir Ásmundur Einar hækkunina mikilvæga og sýna í verki áherslur stjórnvalda á að efla stuðning við börn og barnafjölskyldur.
„Við hækkuðum hámarksgreiðslurnar um 20.000 í byrjun þessa árs. Nú stígum við stærra skref með umtalsverðri hækkun sem er til þess fallin að koma tekjulágum foreldrum til góða,“ segir Ásmundar Einar.
Horfa til þess að lengja fæðingarorlofið
Í tilkynningunni segir einnig að áfram verði unnið að því að styðja betur við foreldra í fæðingarorlofi og þar sé meðal annars horft til þess að lengja fæðingarorlofið. „Þetta er mikilvægt velferðarmál og eins vil ég nefna sérstaklega að þetta er tvímælalaust lóð á vogarskálar aukins kynjajafnréttis.“
Aukin framlög ríkisins vegna hækkunar hámarksgreiðslna fæðingarorlofs 1. janúar næstkomandi eru áætluð um 1,8 milljarður króna á ársgrundvelli.
Hækkunin lögð til fyrir rúmum tveimur árum
Að hækka hámarksgreiðslur úr fæðingarorlofssjóður í 600 þúsund krónur var lögð til fyrir tveimur og hálfu ári. Það var ein af tillögum starfshóps um framtíðarstefnu í fæðingarorlofsmálum sem skilaði tillögum sínum til Eyglóar Harðardóttur, þáverandi félags- og húsnæðismálaráðherra, þann 11. mars 2016. Þá voru hámarksgreiðslur 370 þúsund krónur á mánuði.
Starfshópurinn lagði einnig til að fæðingarorlofið yrði lengt í tólf mánuði úr níu mánuðum, þannig að hvort foreldri um sig eigi fimm mánaða rétt til orlofs og tveir mánuðir verði sameiginlegur réttur sem annað hvort getur notað.